Árlegt kassabílarallý frístundaheimila Frostaskjóla fór fram á Ingólfstorgi í blíðskaparveðri í dag.
Það er alltaf mikið stuð á kassabílarallýi og þar eru allir sigurvegarar, börn og starfsfólk. Sú var líka raunin í dag þegar hátt í 700 börn af frístundaheimilunum Frostheimum, Undralandi, Selinu og Skýjaborg öttu kappi á splunkunýjum kassabílum.
Þessi árlegi viðburður hófst með skrúðgöngu í miðborginni og var gengið fylktu liði niður á Ingólfstorg.
Börnin hafa á vormánuðum smíðað og skreytt kassabíla í frístundastarfinu og kynntu þá stolt til leiks.
Veitt voru verðlaun í nokkrum flokkum, svo sem fyrir flottasta bílinn, besta stuðningsliðið og hraðskreiðasta bílinn. Því fóru allir heim sem sigurvegarar með farandbikar því til sönnunar. Að keppni lokinni var börnum og gestum boðið upp á skemmtiatriði og hressingu. Þessi líflegi viðburður, sem nú fór fram í tólfta sinn, vekur ávallt mikla lukku í miðbænum. Verslunareigendur og borgarbúar flykktust út og margir fylgdust með keppninni og tóku þátt í gleði barnanna.