Frístundamiðstöðvarnar Kampur og Frostaskjól verða sameinaðar undir eina yfirstjórn frá og með 1. júlí nk.
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 9. mars að setja yfirstjórn tveggja frístundamiðstöðva, Kamps og Frostaskjóls, undir eina yfirstjórn. Sameiningin kemur til framkvæmda 1. júlí næstkomandi. Eftir sameiningu verður einn framkvæmdastjóri, fjármálastjóri, deildarstjóri barnastarfs og deildarstjóri unglingastarfs í yfirstjórninni í stað tveggja áður.
Í greinargerð með tillögu sem meirihluti ráðsins samþykkti segir m.a. að sameiningin sé hagræðingaraðgerð, hún auki samlegð í rekstri og þjónustu starfsstöðva og miðlægum stöðugildum fækki. Markmiðið sé að standa vörð um grunnþjónustu við börn og ungmenni með því að greina tækifæri í hverfum borgarinnar til að endurskipuleggja rekstur starfsstöðva. Sameiningin muni ekki hafa áhrif á þjónustustig frístundamiðstöðvanna.
Frístundamiðstöðin Kampur tók formlega til starfa 1. maí 2007. Hún hefur umsjón með þremur frístundaheimilum; Draumalandi við Austurbæjarskóla, Eldflauginni við Hlíðaskóla og Halastjörnunni við Háteigsskóla. Einnig þremur félagsmiðstöðvum við sömu skóla. Þá er Kampur þekkingarmiðstöð skóla- og frístundasviðs í frístundastarfi fyrir innflytjendur.
Frostaskjól tók til starfa 1986 og þjónustar Vesturbæ með fjölbreyttu félags- og frístundastarfi fyrir börn og unglinga. Áhersla er lögð á forvarnir, lýðræði, mannréttindi og virka þátttöku. Undir Frostaskjól heyra fjögur frístundaheimili; Selið, Skýjaborgir, Frostheimar og Undraland. Einnig tvær félagsmiðstöðvar, Frosti og Hofið.
Engin breyting verður á þjónustu eða sérhæfingu frístundamiðstöðvanna við sameininguna.
Ákvörðun skóla- og frístundaráðs hlýtur endanlegt samþykki í borgarráði.