Jólatré eru kjörin til endurvinnslu

Umhverfi Mannlíf

""
Jólatré eru kjörin til endurvinnslu og eru borgarbúar hvattir til að skila þeim á endurvinnslustöðvar Sorpu sem tekur við þeim endurgjaldslaust. Einnig fer vel á að búta þau niður og setja í safnhauga í einkagörðum til að búa til moltu.   
 
Reykjavíkurborg hirðir ekki jólatré og hefur ekki gert frá því um jólin 2008. Fyrst eftir breytinguna buðu íþróttafélög upp á þá þjónustu að hirða jóltré gegn gjaldi.  Sorphirða Reykjavíkur, Gámaþjónustan og Íslenska gámafélagið hirða ekki jólatré í ár.
 
Upplýsingar um opnunartíma Sorpu eru á www.sorpa.is