Jólagöngugötur í miðborginni

Mannlíf

""

Göngugötur í miðborginni verða opnar yfir jólin eins og segir hér að neðan. Hluti Laugavegs, frá Vatnsstíg að Ingólfsstræti, hluti Skólavörðustígs frá Bergstaðastræti að Laugavegi og Bankastræti neðan við Ingólfsstræti.

Frá kl. 13.00 fimmtudaginn 22. desember til kl. 08.00 að morgni Þorláksmessu föstudags 23. desember. Á Þorláksmessu 23. desember frá kl. 13.00 til kl. 08.00 að morgni aðfangadags, 24. desember og frá kl. 13.00 á aðfangadag til kl. 08.00 að morgni 27. desember.

Við minnum á jólatorgið við Hljómalind en þar er girnilegur matarmarkaður og er gengið inn á torgið frá Laugavegi 19.