Jólagleðin í Árbæjarsafni

Skóli og frístund Mannlíf

""

Jólagleði Árbæjarsafns nær hámarki n.k. sunnudag 18. des en það verður í þriðja og síðasta sinn sem jóladagskráin verður í boði þetta árið.

Dagskráin í ár hefur verið mjög vel sótt enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs. En á meðal nýjunga sem vakið hefur mikla lukku er að í ár er gestum boðið að smakka sykraðar möndlur sem steiktar eru í potti á útieldstæði.

Það er eitthvað um að vera á öllu safnsvæðinu og geta ungir sem aldnir rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kringum jólatréð og syngja vinsæl jólalög.

Húsin á Árbæjarsafni bera upprunaleg og skemmtileg nöfn. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu  búa börn og fullorðnir til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast með tréútskurði og í Miðhúsum er hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti eru búin til tólgarkerti og kóngakerti eins og í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er  kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.           

Fastir liðir:

14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.

15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð. MR kórinn leiðir sönginn.

14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum og taka þátt í söng og dansi í kringum jólatréð.    

Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar og hefðbundnar jólaveitingar.

Fullorðnir 18+ 1.500 kr.

Börn (yngri en 18), ellilífeyrisþegar (70+) og öryrkjar: Ókeypis aðgangur