Jóladagskrá Árbæjarsafns, jól í gamla daga.

Skóli og frístund Mannlíf

""

Jóladagskrá Árbæjarsafns er ómissandi hluti aðventunnar í borginni enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs.

Sérstök jóladagskrá verður sunnudagur 4. des, 11. des og 18. des 13:00-17:00

 

Jóladagskrá Árbæjarsafns er ómissandi hluti aðventunnar í borginni enda leitun að stað sem er eins notalegt og skemmtilegt að heimsækja á þessum tíma árs.

 

Dagskráin er á öllu safnsvæðinu og geta ungir sem aldnir rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kringum jólatréð og syngja vinsæl jólalög.

 

Húsin á Árbæjarsafni bera upprunaleg og skemmtileg nöfn. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti er spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu  búa börn og fullorðnir til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast með tréútskurði og í Miðhúsum er hægt að fá prentaða jólakveðju. Í Efstabæ er jólaundirbúningurinn kominn á fullt skrið og skatan komin í pottinn. Í hesthúsinu frá Garðastræti eru búin til tólgarkerti og kóngakerti eins og í gamla daga. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er  kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.            

Fastir liðir:

14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni.

15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð.

14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum og taka þátt í söng og dansi í kringum jólatréð.    

 

Að vanda býður Dillonshús upp á ljúffengar og hefðbundnar jólaveitingar.

Fullorðnir 18+ 1.500 kr.

Börn (yngri en 18), ellilífeyrisþegar (70+) og öryrkjar: Ókeypis aðgangur

Menningarkortið veitir ókeypis aðgang að safninu.

Allir velkomnir!

Árbæjarsafn, Kistuhyl 4, 110 Reykjavík

www.borgarsogusafn.is

Celebrate Christmas in the old fashioned way at the Árbær Open Air Museum!

Sunday 4th, 11th and 18th December, from 13:00 -17:00



Christmas at the Árbær Open Air Museum is a must for visitors to the city during Advent. Offering a great program of events for the whole family, you'll not find a more cosy or cheerful place to visit this time of year.

With activities taking place in all areas of the museum, there will be plenty for visitors of all ages to see and do while strolling between the charming traditional houses and taking in the festive Christmas atmosphere.

There'll be traditional activities such as singing popular songs and dancing around the Christmas tree, and those naughty Christmas Lads will be out and about too, peeping through windows and making the usual mischief.

During Advent, there will be a variety of activities taking place within the different houses. At Árbær guests can make traditional Icelandic Leaf Bread, while up in the Baðstofa (the loft) they'll be able to spin yarn and try their hand at knitting. At Granary (Kornhús), mum, dad and the kids can enjoy some family time making traditional Icelandic Christmas decorations. Visitors to Hábær will be able to get a taste of traditional Icelandic hangikjöt (smoked lamb) and on offer and at Nýlenda House there will be wood whittling.

At Efstibær the Christmas preparations will be in full swing with the customary Skate fish cooking in the pot, while at Miðhús it will be possible to get Christmas cards printed. At the Stable on Garðastræti they will be making candles the way they used to in the olden days, while at Krambúð (the museum’s general store) guests can stock up on confectionary and a variety of Christmas goods.      

Main events:

14:00 Service at the Church

15:00 Singing and dancing around the Christmas tree

14:00-16:00 Entertainment with the Christmas Lads

Traditional Icelandic Christmas fare will be available at Dillon's House.

Admission:

Adults 18+ 1.500 kr.

Free admission for children (18 and under), senior citizens (70+) and disabled.

Free admission for Menningarkort (Culture Pass) holders.

Everyone's welcome!