Jákvætt viðhorf til náms og trú á eigin námsgetu

Skóli og frístund

""
Niðurstöður fyrir Reykjavík úr könnun Skólapúls á virkni, líðan og skóla- og bekkjaranda hjá nemendum í 6.-10. bekk liggja nú fyrir en 32 skólar í borginni tóku þátt í könnuninni. Af svörum 2. 300 nemenda má m.a. lesa að viðhorf þeirra til námsgreina eru mjög jákvæð og trú á eigin vinnubrögð og námsgetu koma sérstaklega vel út.  
Nemendur í Reykjavík voru efstir í mælingum Skólapúlsins í neyslu á hollum mat borið saman við önnur sveitarfélög en sem dæmi má nefna sögðust 9,5% nemenda í Reykjavík borða grænmeti fjórum sinnum á dag eða oftar samanborið við 7,9% nemenda á landsvísu. Jákvæðni í garð hreyfingar var mikil en 87% nemenda sögðust hafa gaman af því að reyna á sig líkamlega.



Rúm 11% nemenda sögðust hafa lent í einelti á síðustu 12 mánuðum sem er svipað hlutfall og í öðrum sveitarfélögum sem þátt tóku í könnuninni. Algengasta birtingarmynd eineltis var baktal en nær allir sem höfðu orðið fyrir einelti nefndu það. Um 2% nefndu neteinelti sem var næst lægsta birtingarform eineltis.



Skólapúlsinn mælir vellíðan nemenda þar sem nemendur eru spurðir um ýmsar tilfinningar sem þeir upplifðu daginn fyrir töku könnunarinnar. Þar má nefna að 82% nemenda voru oft eða alltaf glaðir og einungis um 2% nemenda voru daprir, niðurdregnir eða reiðir. Athyglisvert er að um 26% nemenda upplifðu oft eða mjög oft stress og átti það einnig við um nemendur almennt á landinu.


Þriðji þátturinn sem mældur er í Skólapúlsinum snýr að skólamenningu og voru 83% nemenda þeirrar skoðunar að þeir tilheyrðu hópnum í skólanum og 89% voru ánægðir þar.  Samband nemenda við kennara var yfirleitt gott og má nefna að rúm 80% nemenda töldu kennara sína hlusta vel á sig og vera sanngjarna við sig.  Aukin þátttaka nemenda í umræðum í skólastofu og skoðanaskipti um viðfangsefni í náminu mætti hins vegar bæta að mati margra nemenda.



Grunnskólar í Reykjavík hafa aðgang að niðurstöðum úr Skólapúlsi ásamt samanburði við landsmeðaltal og nýtast þær í umbótum og sjálfsmati skólanna.  Skóla- og frístundasvið nýtir niðurstöðurnar einnig við ytra mat á skólastarfi og í stuðningi við einstaka skóla í málum sem snúa að líðan nemenda.