Í leikskólanum Geislabaugi í Grafarholti hefur verið unnið skemmtilegt þróunarverkefni til að efla jafnréttismenntun.
Jafnréttisverkefnið í Geislabaugi hefur staðið yfir í nokkur ár en aðalmarkmið þess eru:
- Að gera kennara leikskólans meðvitaðri um mikilvægi jafnréttis í uppeldi barnanna.
- Að skoða hvort leikskólinn er að veita stelpum og strákum jöfn tækifæri til náms.
- Að skoða hvernig börnin, stelpur og strákar, tala saman og greina undirliggjandi viðhorf þeirra hvort til annars.
- Að skoða hvernig leikskólinn mætir mismunandi þörfum stelpna og stráka .
- Að auka meðvitund kennara um viðhorf sín og hvernig þeir koma þeim á framfæri í orðum og gjörðum.
Töluverð greiningarvinna fór fram í leikskólanum í upphafi verkefnisins þar sem starfsfólkið kannaði leikföng, bókakost, leiksvæði og leiki barnanna og hvernig kynin komu fram við hvort annað. Skráð var hvaða leiksvæði kynin völdu sér, hvernig efnivið á hverjum stað og hvernig leikföng þau höfðu með sér á dótadegi. Einnig var rýnt í eigin barm og skoðað hvort munur væri á framkomu, tilsvörum og orðanotkun starfsfólks þegar drengur og stúlka áttu í hlut.
Margt gagnlegt kom í ljós í þessari greiningarvinnu, m.a. um mikilvægi þess að börn hefðu fyrirmyndir sem fara yfir hefðbundin kynjalandamæri. Þá kom í ljós að skapa þarf aðstæður fyrir drengi til að leika sér meira í umönnunarleikjum og fyrir stelpur til að æfa kjark og þor og trú á eigin getu. Síðast en ekki síst skilaði verkefnið starfsfólkinu dýrmætri reynslu sem hefur nýst til að setja ný markmið í jafnréttisstarfinu.
Fjallað er um jafnréttisverkefnið í Geislabaugi í nýju fréttabréfi skóla- og frístundasviðs. Sjá fréttabréfið.