Í byrjun árs tóku nemendur og starfsfólk Árbæjarskóla sig til og hófu jákvæðni mánuð sem bar yfirskriftina JÁ-núar.
Hugmyndin kviknaði hjá nemendum sem sitja í nemendaráði skólans. Nemendum fannst kjörið að lýsa upp svartasta skammdegið með því að minna á jákvæðni og gleði. Hver vika JÁ-núar hafði ákveðna yfirskrift: gleði, sjálfsmynd/sjálfstraust, jákvæð samskipti og góðverk.
Öll skólastigin tóku þátt í þessu jákvæðniátaki og útfærði hvert stig fyrir sig jákvæðnimarkmið mánaðarins. Kennarar og nemendur fóru ýmsar leiðir að þessum markmiðum, má þar nefna broskeppnir, brandarakeppnir, jákvæðnirannsóknir, sjálfsstyrkingarvinnu, samvinnunám, listsköpun þvert á árganga, góðverk og margt fleira. Þá heimsótti Þorgrímur Þráinsson nemendur í 10. bekk með fyrirlestur sinn „Verum ástfangin af lífinu“ þar sem hann fjallaði um mikilvægi þess að vera góð manneskja og hvernig hægt væri að ná langt með því að setja sér skýr og raunhæf markmið.
Nemendur í yngstu bekkjunum tóku sig til og bjuggu til svokallaða brospinna, gengu um skólann og gerðu tilraun sem gekk út á það að fá fólk til að brosa sem mætti þeim. Niðurstöður þeirra voru mjög góðar að mati nemenda þar sem flestir brostu. Þá settu nemendur unglingadeildar upp jákvæðnivegg þar sem starfsmenn og nemendur gátu sett fram jákvæð skilaboð, tilvitnanir og heilræði.
Nemendur hvetja alla til að vera duglega að gleðja aðra, því eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.