Reykjavík fagnar fimm ára afmæli sem Bókmenntaborg UNESCO um þessar mundir og af því tilefni verður haldið málþing á morgun 19. október i Ráðhúsinu um gildi orðlistar í samfélaginu í samvinnu við Rithöfundasamband Íslands.
Þingið er haldið í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun miðvikudaginn 19. október frá kl. 13 – 16 og er það öllum opið. Rithöfundar, fræðimenn, útgefendur, fjölmiðlafólk og lesendur taka til máls og ræða um orðlist í víðu samhengi. Hvaða máli skiptir það okkur sem samfélag að hlúa vel að orðlist og hvernig stöndum við okkur í þessu hlutverki í dag? Hvað gerum við vel og hvað getum við gert betur? Erum við bókmenntaþjóð? Hverskonar sögueyja er Ísland? Rætt verður um tilganginn og markmiðin, gildi orðlistar í samfélaginu og framtíðarhorfur texta og tungumáls. Hlúum við að bókmenntunum eða eru þær að hverfa sem áhrifavaldur og annað að koma í staðinn? Hvernig bregðast þá bókmenntaheimurinn, samfélagið og valdhafar við? Uppskurður, krufning, umræður.
Meðal þeirra sem koma fram á þinginu eru Eliza Reid, forsetafrú og stofnandi Iceland Writers Retreat, Brynhildur Þórarinsdóttir dósent frá Háskólanum á Akureyri, Kristín Helga Gunnarsdóttir formaður Rithöfundasambandsins, rithöfundarnir Hallgrímur Helgason, Hildur Knútsdóttir og Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Valgerður Þóroddsdóttir rithöfundur og útgefandi, Jórunn Sigurðardóttir útvarpskona og Magnús Guðmundsson blaðamaður. Listamennirnir Ásta Fanney Sigurðardóttir og Kött Grá Pje koma fram. Fundarstjóri verður Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur.
Ekkert þátttökugjald.
Dagskrá:
13:00
Setning
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur, setur þingið.
13:10
Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent: Bókaormar - dýrategund í útrýmingarhættu?
Íslenskir krakkar lesa of lítið, of sjaldan og lesskilningi þeirra hrakar. Allt of stór hópur les ekki neitt utan skólans og varla skólabækurnar heldur. Kennarar, rithöfundar og ráðamenn hafa áhyggjur; hvers konar bókaþjóð er það sem ekki getur alið upp lesendur? Orðræðan er hvöss: drengirnir geta ekki einu sinni lesið sér til gagns. En hver er staðan í raun og veru - hversu hátt hlutfall barna hafnar bókum? Og hvar standa bókaormarnir þegar athyglin beinist öll að bókleysingjunum? Rætt verður um niðurstöður rannsókna á lestrarvenjum barna og leiðir til að nýta þær til gagns og gleði.
13:30
Eliza Reid, forsetafrú og stofnandi Iceland Writers Retreat ræðir um verkefnið og mátt sögueyjunnar
13:50
Hildur Knútsdóttir , rithöfundur – Orð um raunveruleikann
14:10
Valgerður Þóroddsdóttir annar stofnandi bókaforlagsins Partus – Enginn er eyland: öll list er samstarf (þegar vel tekst til).
14:20
Kaffi
14:40
FRESITO
Ásta Fanney Sigurðardóttir og Kött Grá Pje skemmta gestum
14.50
Já, er það ekki! - Pallborðsumræður
Brynhildur Þórarinsdóttir, Hallgrímur Helgason, Jórunn Sigurðardóttir og Magnús Guðmundsson tala um stöðu orðlistar í íslensku samfélagi, gildi hennar, miðlun og framtíðarhorfur.
Pallborðsstjóri er Kristín Helga Gunnarsdóttir.
15:40
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir – Játningar lestrarfíkils
Íslendingar eru mjög á varðbergi gagnvart hvers kyns fíknum, við erum of fíkin í áfengi, hass, mat, klám, samfélagsmiðla og tölvuleiki, sumsé alls konar skemmtilega hluti. Við erum alveg jafn vel meðvituð um þetta vandamál og þá staðreynd að við lesum alls ekki nógu mikið. Hvernig lenti lesturinn í hóp með leiðinlegum hlutum á borð við megranir, sem við gerum einhvern veginn aldrei nóg af? Heimspekilegar hugleiðingar í bland við vandræðalegar játningar manneskju sem hefur stundað óheilbrigðan bókalestur í tvo áratugi.
15:50
Samantekt fundarstjóra
16:00
Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, ávarpar samkomuna.