Markaðssetning á Reykjavík sem áfangastað í gegnum hátíðir og viðburði var viðfang erindis sem Karen María Jónsdóttir viðburðastjóri á Höfuðborgarstofu flutti á ráðstefnu í Edinborg á vegum ETAG föstudaginn 5. febrúar .
Höfuðborgarstofa hefur síðastliðin þrjú ár unnið að því að kynna hátíðaborgina Reykjavík fyrir erlendum ferðamönnum undir merkjum #Reykjavíkloves en undir verkefnið falla ekki einungis hátíðir í Reykjavík heldur hátíðir í öllum sex sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.
ETAG (Edinburgh Tourism Action Group) eru regnhlífasamtök 1500 ferðaþjónustuaðila í Skotlandi. Markmið þeirra er að tryggja samhug ólíkra aðila innan greinarinnar og vinna að uppbyggingu innan hennar. Samtökin standa reglulega fyrir námskeiðum og fræðslu fyrir sína aðildarfélaga auk þess að halda árlega ráðstefnu þar sem þau málefni sem efst eru á baugi hverju sinni eru dregin fram.
Í fyrirlestrinum fór Karen yfir það hvernig hátíðir og viðburðir gera borg eins og Reykjavík ekki einungis að áhugaverðum stað til að lifa og starfa í. Hátíðir eru einnig mikilvægt aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn sem vilja njóta menningar í bland við stuttar náttúruferðir út fyrir borgarmörkin og búa þannig til einstaka heildarupplifun.
Hátíðir höfuðborgarsvæðisins eru hátt í sextíu talsins. Það vakti athygli að ólíkt öðrum hátíðaborgum eins og Edinborg eru hátíðarnar í Reykjavík flestar haldnar utan háannatíma það er frá september til og með maí og eru þannig mikilvægur afþreyingarmöguleiki þegar aðgangur að náttúru landsins er takmarkaður. Framboð og fjölbreytni hátíðanna er mikil og ná þær yfir allar listgreinar og fjölmarga króka og kima menningar okkar.