Innköllun á Sólgæti Ferðanasl

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í tilefni af því að Heilsa ehf. innkallar Sólgæti Ferðanasl vegna ófullnægjandi innihaldslýsingar.
Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Sólgæti Ferðanasl þar sem listinn yfir innihaldsefni vörunnar tilgreinir ekki öll innihaldsefni hennar. Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Sólgæti.

Vöruheiti: Ferðanasl.

Strikanúmer: 5024481297488.

Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.

Umbúðir: Plastpoki.

Nettómagn: 250 g.

Ábyrgðaraðili: Framleitt í Bretlandi fyrir Heilsu ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Heilsuhússins, Melabúðin, Lyfja Lágmúla og Gló veitingar Fákafeni.
Neytendur sem hafa keypt vöruna eru vinsamlega beðnir um að skila henni í verslunina þar sem hún var keypt eða til Heilsu ehf., Bæjarflöt 1-3, Reykjavík.  Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Heilsu ehf.  í síma 533 3232.