Borgarbúar og gestir geta upplifað sannkallaða EM stemningu á Ingólfstorgi frá 10. júní-10. júlí eða meðan knattspyrnumótið stendur yfir í Frakklandi. Sérstök opnunarhátíð verður haldin á torginu á föstudaginn 10. júní kl. 18.
Þann dag verður sýndur fyrsti leikur mótsins, Frakkland-Rúmenía. Torgið mun ganga undir nafninu EM-torgið frá og með opnunardeginum og vera eins konar heimavöllur Íslands enda búist við að landinn fjölmenni á torgið til að horfa á Ísland spila. Ferðamenn munu jafnframt nýta sér torgið en þar verða alls 45 leikir á mótinu sýndir á risaskjá. Það má því búast við mikilli stemningu á EM-torginu í sumar en sambærileg torg eru mjög vinsæl í erlendum stórborgum.
Stöðug dagskrá verður á torginu í kringum alla 45 leikina og skemmtun í boði fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess er andlitsmálun fyrir börn, knattþrautir KSÍ, lukkuhjól, mannlegur „fussballvöllur“ og ýmsar aðrar uppákomur sem tengjast m.a. menningu þeirra landa sem eru að spila hverju sinni.
Þá verður dagskráin kringum leiki Íslands afar vegleg. Útvarpsstöðin K100 heldur síðan uppi fjörinu á sviðinu á milli útsendinga og verður með reglulegar innkomur í beinni útsendingu frá torginu í EM-svítunni í Sjónvarpi Símans.
Það eru KSÍ, Síminn, Borgun, Icelandair, Íslenskar getraunir, Landsbankinn, N1 og Coca-Cola sem standa að EM- torginu í samvinnu við Reykjavíkurborg.