Icewear Magasín hlýtur Njarðarskjöldinn 2016

Mannlíf Menning og listir

""
Njarðarskjöldurinn er viðurkenning og hvatningarverðlaun sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu.  
Njarðarskjöldurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Hvalasafninu síðdegis í dag. Um er að ræða hvatningarverðlaun þar sem útnefnd er ferðamannaverslun ársins og  er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára.
 
Horft er  til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum. 
Markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík.
 
Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við var frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta. 
 
Í ár hlýtur verslun Icewear Magasín verðlaunin, en Icewear rekur alls átta verslanir og þar af eru sex í Reykjavík.  Icewear Magasín opnaði glæsilega verslun sína í Austurstræti í apríl á síðast ári í húsnæði þar sem áður var banki. Gunnlaugur Halldórsson hannaði útlit en árið 1999 var hönnun hans friðuð. Hönnun nýju verslunarinnar var unnin í samstarfi við Stúdíó Granda og Minjastofnun sem var með í ráðum til að vernda hönnun og sögu hússins. 
 
Dökkar innréttingar með marmara eru áberanda með bankahvelfingu í kjallara. Allt þetta var skemmtileg áskorun að vinna með og sáu stjórnendur og hönnuðir tækifæri til í að gera sem mest úr og flétta saman við nýja hönnun. Kopar er áberandi og m.a. er framhliðin öll klædd kopar sem á eftir að veðrast og verða fallegri með árunum.
 
Icewear Magasín hefur það að markmiði að veita framúrskarandi þjónustu. Ekki bara til gesta borgarinnar heldur líka íbúa, með fjölbreyttu vöruúrvali og fallegri hönnun. Í versluninni eru vörur frá yfir 100 íslenskum birgjum og framleiðendum.  Fyrirtækið hefur tekið þátt í að efla menningarlíf miðborgarinnar með tónleikum og viðburðum, m.a  spiluðu 16 hljómsveitir í versluninni á hátíðinni. Fyrirtækið varð á síðasta ári stoltur styrktaraðili tónlistarhátíðarinnar auk þess sem fyrirtækið styrkir ýmis íþróttafélög og sjóði.
  
Að hvatningarverðlaununum standa Reykjavíkurborg, Miðborgin okkar, Félag atvinnurekenda, Samtök verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtök Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Íslandi.