Opinn íbúafundur verður haldinn í Klébergsskóla á Kjalarnesi mánudaginn 23. maí kl. 19:30-21:00.
Efni fundarins er framtíðarskipulag skóla- og frístundastarfs á Kjalarnesi. Þar verða kynntar tillögur starfshóps sem unnið hefur að hugmyndum á undanförnum vikum.