Hverfisskipulag.is tilnefnt til Íslensku vefverðlaunanna 2015

Skipulagsmál

""
Vefurinn hverfisskipulag.is er tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna 2015
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins. Þau eru haldin til að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Hátíðin sjálf er haldin síðdegis 29.janúar í Gamla Bíó og þá eru verðlaunin veitt.


Átta manna dómnefnd skipuð sérfræðingum í vefmálum, ásamt tveim varamönnum, hefur metið hátt á annað hundrað verkefna sem send voru inn að þessu sinni og úrslit liggja nú fyrir. Veitt verða verðlaun í 15 flokkum, en fjöldi flokka endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vefiðnaðurinn á Íslandi kemur að. 


Opinberir vefir sem eru tilnefndir eru: hverfisskipulag.is, burfellslundur.landsvirkjun.is, island.is, visiticeland.com og vinbudin.is.
 
Hönnunar– og auglýsingastofan Brandenburg hannaði vefinn fyrir embætti skipulagsfulltrúa Reykjavíkur.
 

Hvað er hverfisskipulag?

Hverfisskipulaginu  er ætlað að auðvelda skipulag, áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin áhrif á hverfið sitt. Reykjavík skiptist í tíu borgarhluta. Innan hvers þeirra eru 3–4 hverfi, sem hvert fær sitt eigið hverfisskipulag, enda um margt ólík og með mismunandi áherslur. Skipulagið veitir upplýsingar um hverfin, uppbyggingu þeirra og framtíðarsýn. Sá sem flytur í nýtt hverfi hefur not af hverfisskipulaginu og fær heildarsýn yfir þróun þess. Hverfisskipulagið er starfrækt hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.


Vinna við hverfisskipulagið stendur nú yfir og var til að mynda fullt hús í Breiðagerðisskóla 26. janúar þegar það var kynnt í Háaleiti – Bústöðum. Þá byggðu nemendur í 6. bekk Breiðholtsskóla líkan af hverfinu sínu í desember. Það var gert undir leiðsögn kennara og starfsfólks umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, sem að hélt jafnframt kynningu fyrir nemendur um skipulag, umhverfi og arkitektúr í upphafi vinnunnar.
 
Mottó hverfisskipulagsins er „Taktu þátt í að móta framtíð Reykjavíkur með okkur".
 
 
Tengill