Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands geri samstarfssamning til þriggja ára um að miðstöðin flytji starfsemi sína í Aðalstræti 2 í hjarta Kvosarinnar. Höfuðborgarstofa hefur verið rekin í húsinu frá árinu 2003 en hefur nú flutt í Ráðhús Reykjavíkur.
Markmið samstarfsins er að efla íslenska hönnun og arkitektúr og grundvöll þessara greina til atvinnusköpunar í borginni auk þess að vekja áhuga og auka skilning borgarbúa og gesta Reykjavíkur á mikilvægi greinanna.
Í greinargerð með tillögunni segir að Hönnunarmiðstöð kynni íslenska hönnun og arkitektúr jafnt innanlands sem utan. Þá muni hún með starfsemi sinni í húsinu efla ímynd skapandi miðborgar og styrkja stöðu hönnunar í hjarta Reykjavíkur.
Menningar- og ferðamálasvið hefur haft Aðalstræti 2 á leigu frá þriðja aðila fyrir starfsemi sviðsins og gildir sá samningur til ársloka 2022.
Menningar- og ferðamálasvið hefur haft Aðalstræti 2 á leigu frá þriðja aðila fyrir starfsemi sviðsins og gildir sá samningur til ársloka 2022.
Hönnunarmiðstöð mun á næstu mánuðum koma sér fyrir í hluta Aðalstrætis 2 en fyrir lok árs mun fjölsóttasta upplýsingamiðstöð ferðamála sem starfrækt hefur verið þar einnig flytja í Ráðhúsið. Samningurinn gildir frá ágúst 2016 til ársloka 2019. Heildarframlag Reykjavíkurborgar vegna samstarfsins verður 25 milljónir króna.
Menningar- og ferðamálasvið mun hafa umsjón og eftirfylgni með samstarfssamningnum.