Hönnunarhátíðin HönnunarMars 2016

Menning og listir Mannlíf

""
HönnunarMars fer nú fram í áttunda sinn dagana 10. – 13. mars 2016 og er uppskeruhátíð sem sameinar allar greinar íslenskrar hönnunar.  Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum.
Um 100 viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar ár hvert. Á hátíðinni fara fram viðskiptastefnumót, ný hönnun er frumsýnd og innblástur má sækja víða á sýningum, fyrirlestrum, uppákomum og innsetningum.


Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafísk hönnun og vöruhönnun. Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arktitektum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert.
 
Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með hverju ári og tekur þátt í HönnunarMars þar sem býðst einstakt tækifæri til að auðga andann og sækja innblástur. Hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mjög mikið fyrir þátttakendur.
 
Kynntu þér dagskrá HönnunarMars