Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að heimila grunnskólum að selja stakar máltíðir í gegnum áskriftarkerfi skólamötuneytanna á sérstökum hátíðis- og tyllidögum og þegar máltíðin er hluti af skóladagskránni.
Í greinargerð með tillögunni sem kom frá skóla- og frístundaráði segir m.a. að rétt sé að heimila skólastjórum að selja forsjármönnum grunnskólanemenda stakar máltíðir til handa börnum þeirra á skólatíma í gegnum áskriftarkerfið á sérstökum hátíðar- og tyllidögum þar sem máltíðin er hluti af dagskrá dagsins í skólanum. Skólastjórar útfæri í samráði við skólaráð á hvaða dögum í boði verður að kaupa staka máltíð.
Skóla- og frístundasvið leggur til að miðað verði við að gjaldið verði 500 kr. fyrir hverja máltíð og eigi að jafnaði að duga fyrir hráefniskostnaði. Ekki verði veittur systkinaafsláttur af stakri máltíð. Að öðru leyti verði gjaldskrá vegna skólamáltíða óbreytt.
Núgildandi gjaldskrá skólamötuneytanna kveður á um að máltíðin kosti 355 krónur og að innheimt sé jafnaðargjald miðað við 20 daga í mánuði, eða 7.100 krónur. Ekki er innheimt fyrir mat í júní og ágúst. Foreldrar greiða einungis skólamáltíðir fyrir tvö börn, önnur njóta 100% afsláttar.