Ákveðið hefur verið að bjóða upp á heildstæða sumarþjónustu við Klettaskóla í stað tveggja vikna lokunar eins og verið hefur undanfarin ár.
Í sumar mun börnum og unglingum í Klettaskóla standa til boða heildstæð sumarþjónusta. Foreldrar munu geta valið hvenær þau taka tveggja vikna sumarfrí í stað þess að vera bundnir við jafn langa sumarlokun eins og verið hefur. Möguleiki verður fyrir foreldra að sækja um undanþágu frá sumarleyfisákvæði uppfylli þau til þess skilyrði sem sett eru fram en þessari viðbótaþjónustu er ætlað að tryggja meiri stöðugleika í þjónustu við börn og unglinga sem þurfa mikla umönnun og þola illa rask.
Starfshópur um málið komst að þeirri niðurstöðu að heildstæð þjónusta yfir sumartímann myndi leiða til betri og sveigjanlegri þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra og yrði að öllum líkindum til þess að jafnari nýting yrði á plássum yfir sumarið. Með því að hafa opið allar vikur ársins í frístundastarfi 6-16 ára barna við Klettaskóla gæfist jafnframt meiri möguleiki á heilsársráðningu starfsfólks.
I Klettaskóla eru börn sem þurfa mikla þjónustu sökum fötlunar. Talið er að foreldrar um 17 reykvískra barna í skólanum muni geta sótt um undanþágu vegna sumarleyfisákvæðis og er áætlaður viðbótarkostnaður vegna þess um 3,7 milljónir króna á þessu ári.
Sjá skýrslu starfshóps um þessa viðbótarþjónustu.