Haustuppskera í Heiðarborg

Skóli og frístund

""

Börnin í Heiðarborg njóta gjafa jarðar á haustin, sulta og búa til slátur.  

Börnin í leikskólanum Heiðarborg hafa verið önnum kafin við hauststörfin undanfarnar vikur. Þau hafa tekið upp kartöflur, tínt ber og sultað og búið til bæði blóðmör og lifrapylsu. Þá hafa þau fræðst um innmat eins og nýru, hjörtu, lifur og þindina.

Slátrið sem þau bjuggu til var svo borið fram kalt með grjónagraut og vakti mikla lukku. Þó mætti segja að sultan hafi verið í meira uppáhaldi enda var hún sett á vöfflur.

Í Heiðarborg  er ávallt leitast við að kenna börnunum að bera virðingu fyrir náttúrunni og skapa þeim aðstæður til að öðlast nýja reynslu og tækifæri til að njóta hennar.