Hasselblad verðlaunahafar í Ljósmyndasafninu

Menning og listir Mannlíf

""
PORTRETT – Handhafar Hasselblad verðlaunanna er nafn sýningar sem opnuð verður í Ljósmyndasafni Reykjavíkur laugardaginn 24. september kl. 15.
Á sýningunni  gefur að líta úrval verka eftir handhafa Hasselblad-verðlaunanna úr safneign Hasselblad-stofnunarinnar í Svíþjóð – með sérstakri áherslu á portrett.
 
Alls sjö ljósmyndarar eiga verk á sýningunni sem spanna tímabilið 1940 til 2014. Sýningin skartar lykilverkum goðsagna allt frá Irving Penn og portrettum hans af Salvador Dalí og Marcel Duchamp til Richards Avedon og verks hans The Family sem hann gerði fyrir tímaritið Rolling Stone af áhrifafólki í bandarísku þjóðlífi árið 1976.  
 
Á sýningunni er einnig að finna hina goðsagnakenndu tískumynd Avedons, Dovima with Elephants, Evening Dress by Dior, Cirque d’Hiver, Paris, August 1955.
 
Sigurvegarar Hasselblad-verðlaunanna á þessari sýningu eru:
 
  • Irving Penn, handhafi 1985
  • Richard Avedon, handhafi 1991
  • Christer Strömholm, handhafi 1997
  • Malick Sidibé, handhafi 2003
  • Nan Goldin, handhafi 2007
  • Ishiuchi Miyako, handhafi 2014
  • Wolfgang Tillmans, handhafi 2015
 
Sýningin PORTRETT – Handhafar Hasselblad verðlaunanna er unnin af Hasselblad stofnuninni. Sýningarstjóri er Dragana Vujanovic, aðalsýningarstjóri stofnunarinnar. Sýningin stendur til 15. janúar 2017.
 
Boðið verður upp á tvo viðburði í tengslum við sýninguna:
  • Sunnudagur 25. september kl. 13:30: Sýningarspjall með Dragönu Vujanovic Östlind sýningarstjóra.
  • Laugardagur 5.nóvember kl. 14:00: Áhrifavaldar – Sýningarspjall.
Athugið að aðgangur að Ljósmyndasafni Reykjavíkur er ókeypis.