Hagaskóli og Ingunnarskóli keppa til úrslita í Skrekk

Skóli og frístund

""

Þriðja undanúrslitakeppnin í Skrekk fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöld og báru Hagaskóli og Ingunnarskóli sigur af hólmi. 

Nemendur átta skóla stigu á stokk í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi með frumsamin atriði leik-, söng- og tónlistaratriði. Að venju átti dómnefnd úr vöndu að ráða en niðurstaðan varð sú að Hagaskóli og Ingunnarskóli komust í hóp þeirra átta skóla sem keppa munu til úrslita í beinni sjónvarpsútsendingu mánudaginn 14. nóvember. Alls hafa 650 unglingar stigið á svið Borgarleikhússins og sýnt 24 atriði á þremur undankvöldum og hefur mikil spenna ríkt í salnum á hverju kvöldi.

Í gærkvöld var Borgarleikhúsið þétt setið unglingum úr 8., 9. og 10. bekk sem studdu sína skóla vel áfram.

ALls tóku 24 skólar þátt í þessari vinsælu hæfileikakeppni á þessu hausti. Sex skólar eru þegar komnir í úrslit: Ölduselsskóli, Árbæjarskóli, Hlíðaskóli og Réttarholtsskóli, Ingunnarskóli og Hagaskóli. Dómnefnd velur að auki atriði tveggja annarra skóla til að keppa á úrslitakvöldinu4. nóvember sem sýnt verður frá í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 20.00