Yfir sjö hundruð grunnskólakennarar eru þessa dagana á námskeiðum þar sem þeir fá símenntun af margvíslegum toga.
Í haustsmiðjum kennara eru rösklega þrjátíu námskeið í boði, s.s. um byrjendalæsi, notkun rafbóka í kennslu, snjallforrit, jafnréttisfræðslu, kynfræðslu, kvikmyndagerð og fleira. Þá eru smiðjur um nýbreytni og þróun í hefðbundnum greinum eins og stærðfræði, lestri og ritun. Einnig fer fram kynning á vegum menntamálastofnunar nýjum námsbókum í hinum ýmsu greinum.
Haustsmiðjur standa yfir í tvo daga og fara flestar fram í Langholtsskóla. Lifandi áhugi og afslappað andrúmsloft einkenndi smiðjurnar þegar þær hófust í dag en margir leiðbeinendur eru kennarar úr grunnskólunum, háskólasamfélaginu og sérfræðingar á skóla- og frístundasviði.