Gréta Salóme og grill í Grímsbæ

Mannlíf

""
það verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í Bústaðahverfi á Sumardaginn fyrsta.
Hátíðin hefst á hádegi, klukkan 12, með grilli í Grímsbæ.  klukkan 13.00 flytjast hátíðarhöldin að Bústðarkirkju og þar kemur fram engin önnur en Gréta Salóme en hún flytur framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Að lokinni dagskrá við kirkjuna færist sumargleðin í Víkina klukkan 13.40 en þar verða hoppukastalar, vkingshlaupið, andlitsmálun, söngatriði, myndasýning leikskólanna og glæsilegt kökuhlaðborð.