Grænt ljós fyrir neyðarakstur og Strætó

Umhverfi Framkvæmdir

""
Í dag var  kerfi til forgangsstýringar á umferðarljósum fyrir neyðarbifreiðar formlega prufukeyrt . Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Jón Viðar Mattíasson slökkviliðsstjóri ræstu formlega búnað sem gefur neyðarbílum forgang á umferðarljósum, svokallaða græna bylgju.
Leiðin sem prufukeyrð var í morgun frá Slökkvistöðinni í Skógarhlíð um Bústaðaveg og Snorrabraut að Sæbraut. Þessi leið er mikilvæg fyrir viðbragðstíma neyðabíla slökkviliðsins og einnig greiðir hún leið sjúkraflutninga að Landspítala.
 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var ánægður með þennan áfanga í samstarf viðbragðsaðila. Hér væri verið að nota möguleika sem felast í Snjallborginni Reykjavík til að bæta öryggi samborgaranna, en forgangsstýringin byggir á miðlægri stýringu umferðarljósa í Reykjavík.  „Þetta er einnig hluti í að gera almenningssamgöngur að betri valkosti í Reykjavík. Við erum að fjölga forgangsakreinum og græn bylgja fyrir Strætó er einnig hluti af þeirri áætlun,“ segir Dagur.

Stjórnbúnaður í neyðarbíla

Í sumar voru gerðar nauðsynlegar breytingar á stýribúnaði umferðaljósa á gatnamótum á þessari leið.  Á næstunni verður stjórnbúnaður settur í neyðarbíla slökkviliðsins, bæði slökkvi- og sjúkrabifreiðar og fer þá kerfið sjálfkrafa í gang þegar bifreiðarnar aka á forgangsljósum (bláum ljósum ) og tryggir forgang á viðkomandi ljósum. 
 
Markmið verkefnisins er að tryggja aukið öryggi í neyðarakstri, bæði fyrir þá sem eru í neyðarakstrinum en ekki síður almenna umferð sem neyðaraksturinn snertir hverju sinni.  Einnig er lykilatriði þegar fólk er í lífshættu að stytta viðbragðstíma, ekki síst þegar umferð er mikil.
 
Fyrsta forgangsleiðin er valin vegna aksturs frá slökkvistöð og tengingar við Landspítalann. Gatnamót sem nú þegar hafa verið búin út með nýrri stýringu og hugbúnaði eru:
  • Bústaðavegur-Flugvallarvegur
  • Bústaðavegur-Hringbraut
  • Hringbraut-Snorrabraut
  • Snorrabraut-Egilsgata-Flókagata
  • Snorrabraut-Bergþórugata-Grettisgata
  • Snorrabraut-Laugavegur-Hverfisgata

Strætó verður einnig á grænu ljósi

Strætó mun einnig njóta þess í náinni framtíð að eiga greiðari leið um gatnamót með hinni nýju stýringu, þó það verði ekki forgangsstýring eins og hjá slökkviliðinu. Stýringin mun virka þannig hjá strætó að tæki í vagninum mun skynja þegar vagn nálgast gatnamót og þá lengist tíminn sem grænu ljósin loga í akstursstefnu þeirra.



Uppfæra þarf búnað í vögnunum til að gera þetta virkt og er sú vinna í gangi hjá Strætó.

Samstarfsverkefni

Samstarfsaðilar í  þessu verkefni eru Reykjavíkurborg, Vegagerðin, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Strætó. Auk þeirra hafa Velferðaráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands komið að verkefninu vegna sjúkrabifreiða.  Einnig mun lögreglan geta komið inn í verkefnið í framtíðinni.
 
Vinnustofan Þverá sér um hönnun og aðlögun hugbúnaðar, en umferðarljósadeild Reykjavíkurborgar sér um framkvæmd. Notað er forgangskerfið STREAM frá Siemens en það fellur vel að stjórnbúnaði umferðarljósa Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar sem er einnig frá Siemens, sem Smith & Norland þjónustar á Íslandi.
 
Kostnaður við kaup á STREAM hugbúnaði og nauðsynlega endurnýjun stjórnbúnaðar á gatnamótum eru tæplega 60 milljónir króna. Hlutur Reykjavíkurborgar er 64% þar sem aðeins hluti þessara gatnamóta heyrir til þjóðvega.  Slökkvilið og Strætó greiða kostnað sem fellur til vegna búnaðar í bíla.