Reykjavíkurborg vill verja gróin holt inni í hverfum borgarinnar fyrir ágengum plöntum. Vilt þú hjálpa okkur að endurheimta fjölbreyttan og fallegan holtagróður í þínu hverfi ?
Í grónum hverfum í Reykjavík má víða finna faldar perlur sem eru grýtt holt prýdd fjölbreyttum mólendisgróðri. Þessi holt eru leifar af því landslagi sem borgin byggðist á sem voru oft berangursleg en hýsa nú fjölbreytilega flóru plantna. Veðraðir grágrýtis-hnullungar þaktir litskrúðugum skófum einkenna þessi holt og allt um kring vaxa kunnuglegar plöntutegundir eins og beitilyng, birki, blóðberg, gullmura, holtasóley, krækiberjalyng, ljónslappi o. fl. Holtin eru líka heimkynni fyrir marga fugla og smádýr.
Víða hafa þessi holt látið undan ágengum stórgerðum gróðri sem hrekur burt lággróðurinn sem fyrir er. Þessar ágengu tegundir eru einkum lúpína, skógarkerfill og þistill. Þótt þessar plöntur séu oft glæsilegar og geta jafnvel bætt frjósemi jarðvegsins þá verða þær full einráðar og dreifa sér hratt. Ef ekkert er gert munu fleiri og fleiri holt í borginni verða þakin þessum plöntum sem skerðir líffræðilega fjölbreytni, gerir landið torfærara og landslagið einsleitara.
Reykjavíkurborg vill stemma stiga við þessu og kallar áhugasama borgarbúa með sér í lið. Stefnt er að því að verja nokkur viðkvæm holt sem eru staðsett inni í grónum hverfum fyrir frekari ágangi. Allir sem vilja hjálpa til eru boðnir velkomnir til að taka þátt á sérstökum átaksdögum. Gott er að koma með skóflur og plastpoka.
Í vor byrjum við á tveimur stöðum:

Laugardagur 7. maí - Seljahverfi, Breiðholti. Holtið bak við Skriðusel og Holtasel kl. 13.
Sunnudagur 8. maí - Laugarás, fyrir ofan Áskirkju kl. 13.

Smellið á hlekkina til að fá nánari upplýsingar um viðburðina.
Nánari upplýsingar í síma 411-8535.