Gömul raftæki eru ekki leikföng

Heilbrigðiseftirlit

""
Gömul raftæki eru ekki leikföng og geta verið varasöm fyrir ýmsar sakir m.a. vegna efnainnihalds.
Regluverk sem lýtur að leikföngum barna hefur verið hert undanfarin ár, m.a. um hvaða efni ný leikföng mega innhalda sem eru markaðssett í Evrópu. Á síðustu árum hefur notkun efna á borð við bisphenol A (BPA), ýmis súlfatsambönd (eldhemjandi) og þalöt verið takmörkuð verulega. Meira er nú vitað en áður um efni þessi og hve varasöm þau geta verið.
 
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur annast eftirlit með leikföngum í leikskólum og hafa heilbrigðisfulltrúar stöku sinnum tekið eftir að gömul raftæki, s.s. síma, hárþurrkur og lyklaborð hafa verið notuð við leik. Þessir hlutir eru ekki leikföng og geta verið varasöm fyrir ýmsar sakir m.a. vegna efnainnihalds.
 
Heilbrigðiseftirlitið vill því hvetja starfsfólk sem vinnur með börnum að vera gagnrýnið í vali á leikföngum og fara markvisst yfir þau með ofangreint í huga. Bent skal á að skv. 35. grein í reglugerð nr. 942/2002 um hollustuhætti segir: „Leikföng skulu hæfa aldri barna og þannig gerð og viðhaldið að þau skapi ekki hættu. Leikföng skulu þrifin reglulega.“ Eins er tilgreint samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir leikskóla og dagvistun í heimahúsi að leikföng skulu vera CE-merkt og hæfa aldri barna.
 
Heilbrigðiseftirlitið vekur athygli á stuttum bækling, Kemikalier i barns vardag, um efni í umhverfi barna. Bæklingurinn var gefinn var út af Kemikalieinspektionen í Svíþjóð.