Fyrsta jólabjallan komin upp á Lækjartorgi

Skóli og frístund

""

Börnin á Nóaborg kættust í rigningunni í morgun þegar lýsandi jólabjalla var sett upp á Lækjartorgi. 

Fimmtán jólabjöllur verða settar upp víða í Miðborginni á næstu dögum, en þær voru smíðaðar fyrir nokkrum árum eftir gamalli jólabjöllu sem hékk upp á aðventunni við Aðalstræti eitt. Hugmyndina að endurgerð þeirra áttu þær Bára og Mattý, verslunarmenn við Laugaveginn. 

Börnin á Nóaborg fylgdust spennt með því þegar fyrsta bjallan var hengd upp og töldu ljósaperurnar sem skreyttu hana. Svo var sungið hið sígilda jólalag, Ég sá mömmu kyssa jólasvein, áður en haldið var á kaffihús til að hressa sig á kakó og köku. 

Jólalýsing í borginni verður með hefðbundnu sniði. Jólabjöllur verða hengdar yfir götur í miðborginni ásamt öðru skrauti, en einni hefur verið bætt við frá í fyrra. Jólatré verða sett upp á torgum víða um hverfin, jólaskraut fest á ljósastaura og lýsing sett í götutré. Einnig má gera ráð fyrir að jólavættirnar sem spruttu fram ljóslifandi á nokkrum veggjum borgarinnar í fyrra muni birtast á ný.