Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga með fulltrúum Sveitarstjórnaþings Evrópuráðsins fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Fundur Evrópuráðið lætur sveitarstjórnarmál til sín taka.
Evrópuráðið lætur sveitarstjórnarmál til sín taka. Sveitarstjórnarþing Evrópu er hluti af starfsemi Evrópuráðsins, „The Congress of Local and Regional Authorities“. Þingið er ráðgefandi gagnvart ráðherranefnd og þingi Evrópuráðsins.
Sveitarstjórnarþingið hefur unnið að ýmsum Evrópusamningum um málefni sveitarstjórnarstigsins, en þar ber hæst Evrópusáttmálann um sjálfsstjórn sveitarfélaga, sem Ísland hefur fullgilt. Fullgilding felur í sér að aðildarríki skuldbinda sig til að virða sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga í innlendri lagasetningu sinni. Þingið hefur jafnframt ályktað um fjölmörg mál og gerir reglulega úttektir á stöðu staðbundins lýðræðis í aðildarríkjum sínum sem lagðar eru fyrir þingið.
Þingið fylgist með framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í aðildarríkjunum og setur evrópska staðla um þau mál. Það hefur t.d. sett leiðbeinandi siðareglur fyrir kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi.
Nánari upplýsingar um Evrópuráðið og íslensk sveitarfélög