Fundað um framtíðarfyrirkomulag skóla- og frístundastarfs á Kjalarnesi

Skóli og frístund

""
Opinn íbúafundur var haldinn í Klébergsskóla á Kjalarnesi mánudaginn 23. maí þar sem rædd voru tillögur um sameiginlega yfirstjórn í skólastarfinu. 
 
Hátt í fimmtíu manns sátu fundinn og voru líflegar umræður um skýrslu  starfshóps sem nýlega skilaði af sér . Hópurinn lagði til að leikskóli og grunnskóli fari undir sameiginlega stjórn. Ragnar Þorsteinsson fyrrverandi sviðsstjóri sem leiddi starfshópinn kynnti tillögurnar.  Þær eru nú til umsagnar í foreldraráði, skólaráði, foreldrafélögum og hverfisráði.