Frístundamiðstöðin í Vesturbæ, Frostaskjól, heldur upp á þrítugsafmælið sitt miðvikudaginn 24. febrúar með skemmtun fyrir alla fjölskylduna sem hefst kl. þrjú.
Á afmælisdagskrá Frostaskjóls verður boðið upp á sýnishorn af frjóu frístundastarfi, s.s. uppstand, tónlistarflutning unglinga úr félagsmiðstöðinni Frosta, sýningu á stuttmyndum sem börn á frístundaheimilunum Undralandi, Selinu, Skýjaborgum og Frostheimum hafa gert og flutt verður atriði úr hæfileikakeppninni Frostheimar got talent!
Frostaskjól hóf starfsemi í febrúar 1986 og starfaði fyrstu árin sem félagsmiðstöð með áherslu á forvarnarstarf. Starfsemin hefur undið upp á sig ár frá ári og nú starfa undir Frostaskjóli fjögur frístundaheimili og tvær félagsmiðstöðvar.
Frostaskjól byggir fagstarfið á sömu markmiðum og í upphafi; börnum og unglingum er boðið upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf með áherslu á forvarnir, heilbrigði og sterka sjálfsmynd. Lýðræði, mannréttindi og þátttaka er í brennidepli í öllu fagstarfinu; barnaráð starfa á frístundaheimilum, miðstigsráð eru fyrir börn í 5.-7. bekk grunnskólanna og í félagsmiðstöðvunum eru unglingaráð að störfum. Síðast en ekki síst starfar öflugt ungmennráð í Vesturbænum.
Starfseiningar Frostaskjóls eru félagsmiðstöðin Frosti, frístundaklúbburinn Tíu12, frístundaheimiilin Undraland, Skýjaborgir, Selið og Frostheimar og félagsmiðstöðin Hofið sem þjónustar börn með fötlun vestan Elliðaáa. Starfsmenn eru 140, með fjölbreytta menntun og reynslu.
Öll börn í 1. og 2. bekk og sjö af hverjum tíu í 3.-4. bekk grunnskólans eru á frístundaheimilum í Vesturbænum.
Öll börn í 1. og 2. bekk og sjö af hverjum tíu í 3.-4. bekk grunnskólans eru á frístundaheimilum í Vesturbænum.