Nú stendur yfir UNICEF- vika á frístundaheimilum Frostaskjóls
Í liðinni viku hefur staðið yfir fræðslu- og fjáröflunarverkefni í frístundaheimilum Frostaskjóls þar sem börnunum hefur gefist tækifæri til að kynnast aðstæðum jafnaldra sinna í öðrum heimshlutum. Markmiðið hefur verið að fræða þau um lífskjör barna víða um heim og leggja sitt af mörkum til að bæta þau.
Meðal annars var sett upp þrautabraut á öllum frístundaheimilunum í Vesturbæ og söfnuðu börnin áheitum hjá ættingjum og vinum gegn því að hreyfa sig og leysa skemmtilegar þrautir. Ávinningurinn mun renna óskiptur til Barnahjálparinnar.