Stofnanir skóla- og frístundasviðs skoruðu hátt í könnuninni Stofnun ársins sem gerð er af Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar,VR og SFR og eru í þremur efstu sætunum í flokki stærri stofnana.
Samkvæmt könnuninni var Frístundamiðstöðin Kampur í fyrsta sæti sem stofnun ársins í flokki stærri stofnana, en hún lenti í fjórða sæti í sambærilegri könnun í fyrra. Í öðru sæti var frístundamiðstöðin Frostaskjól og því þriðja Norðlingaskóli. Í fjórða sæti var frístundamiðstöðin Miðberg í Breiðholti. Allar fengu þessir starfsstaðir viðurkenningu sem fyrirmyndarstofnanir.
Í flokki minni stofnana lenti Fossvogsskóli í þriðja sæti annað árið í röð. Fyrsta sætið átti skrifstofa ÍTR sem jafnframt fékk viðurkenningu sem hástökkvari ársins.
Stofnun ársins er er stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem gerð er hér á landi og var úrtakið tæplega 50.000 manns. Könnunin var gerð af Gallup og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði.