Frístundahreysti barna í Guluhlíð

Skóli og frístund Mannlíf

""
Það var dansað, hlaupið, sungið og stokkið í frístundahreysti Guluhlíðar í dag sem er sniðið að börnum með sérþarfir. 
Fjörutíu og átta börn úr 1.-4. bekk sem eru í sérhæfðu frístundastarfi í Guluhlíð tóku þátt í keppninni þar sem allir eru sigurvegarar. Páll Óskar hóf leik með söng og gleði og síðan fóru öll börnin þrautahringinn og sýndu bæði þor og þrek. Það sem mestu skipti þó var að allir skemmtu sér hið besta og áttu góða stund í Íþróttahúsinu í Hátúni.
 
Frístundahreysti-keppnin fékk hvatningarverðlaun skóla- og frístundasviðs vorið 2015 en það miðar að því að skapa fötluðum börnum sambærilegan vettvang og í Skólahreysti. Verkefnið hefur síðan vaxið og dafnað og var keppnin í dag samstarfsverkefni Guluhlíðar, Íþróttasambands fatlaðra og Skólahreysti. Þá styrkti Kyndilhlaup lögreglunnar keppnina. Meginmarkmiðið er að allir fái að vera með og spreyta sig á hreystiþrautunum. 
 
Stefnt er að því að frístundahreysti-keppnin verði árlegur viðburður á vegum Guluhlíðar fyrir öll börn með sérþarfir þannig að þau geti sett sér markmið, æft og stefnt að þátttöku í nokkrar vikur fyrir keppnina.