Friðarskipið með friðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur

Skóli og frístund Mannlíf

""

Friðarskipið eða Peace Boat hefur verið í siglingum frá árinu 1983 og farið milli landa með það að leiðarljósi að vekja athygli á friði, mannréttindum og umhverfisvernd. Friðarskipið er nú í Reykjavík og af því tilefni var skipulögð sérstök dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Ferð skipsins er tileinkuð friðarboðskap þeirra sem lifðu af kjarnorkuárásirnar á Nagasaki og Hiroshima  árið 1945, þau voru þá börn að aldri, á bilinu 6-11 ára, og eru nú orðin 75 til 81 árs. Þeir sem lifðu af árásina kallast á japönsku „Hibakusha" eða í beinni þýðingu „Fólkið sem varð fyrir áhrifum atómsprengjunnar".

Þegar kjarnorkusprengjunni„Litla drengnum” var varpað úr flugvélinni Enola Gay að morgni 6. ágúst 1945 áttu yfir 30.000 börn á aldrinum 6 – 11 ára heima í Hiroshima. Helmingur þeirra lést samstundis eða skömmu síðar og foreldrar þeirra gátu ekkert gert þeim til bjargar - ef þeir voru þá sjálfir á lífi.

Þremur dögum síðar, þegar sprengjuvélin Bockscar varpaði „Feita karlinum” á Nagasaki endurtók hryllingurinn sig en í þeirri árás létu yfir 8.000 börn lífið.

„Hibakusha“ telja að allir foreldrar sem heyra söguna komist ekki hjá því að reyna að gera allt til að forða börnum sínum frá svo grimmum örlögum og vilja því koma boðskapnum á framfæri sem víðast.

Nemendum frá nálægum grunnskólum var boðið i Ráðhúsið til þess að hlýða á frásögnina og kynnast japanskri menningu. Boðið var upp á kennslu í  origami, kennslu í japanskri skrift, farið í japanska leiki og sýndur trommudans frá eyjunni Okinawa. Að því loknu hófst svo frásögn þeirra sem lifðu af árásirnar.