Friðarhátíð sett í Ráðhúsi Reykjavíkur

Mannlíf Menning og listir

""
Friðarhátíðin er alþjóðleg hátíð þar sem kórar hvaðanæva að úr heiminum syngja sama lagið á sama tíma þriðja sunnudag í febrúar fyrir heimsfriði. Í febrúar 2015 sungu mörg þúsund manns um allan heim saman og gerðust friðarboðar. 
 
 
Hátíðin er nú haldin öðru sinni og í ár munu margir kórar leggja leið sína til landsins til að taka þátt í viðburðinum  og búast skipuleggjendur við að þessi hátíð muni stækka enn meira á næsta ári.
 
Í morgun komu ríflega 200 börn úr hinum ýmsu barnakórum saman í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í tilefni af hátíðinni.  Dagur B. Eggertsson sem er verndari hátíðarinnar flutti stutt ávarp um friðarborgina Reykjavík og setti hátíðna formlega. Því næst tóku börnin við og sungu fjögur lög, Sprengisandur, Love og To be greatful. Fjórar kunnar söngkonur,  þær Kristjana Stefánsdóttir, Þórunn Antonía, Elísabet Ormslev, Alda Dís Arnardóttir og Ragnhildur Gröndal, sungu svo lagið We are the world með börnunum.  
 
Sunnudaginn 21. febrúar mun hluti af kórnum syngja samsöng í Hörpu og mun Ben Parry sjá um samæfingu og samsöng. Um 600 manns komu saman í Hörpu í fyrra og sungu lagið Love í þágu friðar og var það einstök upplifun bæði fyrir söngvarana og áheyrendur. Allir eru velkomnir.