Fimmtudaginn 27. október opnar sýningin Friðarbrú í Gerðubergi. Sýningin er listræn brú þar sem ólíkar kynslóðir mætast og tengja saman mismunandi hverfi borgarinnar á nýstárlegan og skemmtilegan hátt.
Á sýningunni verða jafnframt ljóð sem börn úr leikskólum í Vesturbæ Reykjavíkur sömdu fyrir sýninguna í sögubílnum Æringja. Þessi ljóð urðu hópi nemenda í félagstarfi eldri borgara í Gerðubergi uppspretta vatnslitamynda sem þeir máluðu þar undir áhrifum ljóðanna.
Verkefnið Friðarbrú er því einskonar brú á milli leikskólabarna og aldaðra, Breiðholts og Vesturbæjar. Sýningin er hluti af lestrarhátíð þar sem þemað í ár er einmitt Orð og mynd.
Sýningin opnar í Horninu í Gerðubergi 27. október klukkan 13.30