Fræðsla og umræður um eineltismál

Skóli og frístund

""
Fjölmenni var í Hlöðunni í Gufunesbæ þann 18. apríl þegar starfshópur um Vinsamlegt samfélag bauð  til fundar um eineltismál.
Leik- og grunnskólakennarar ásamt frístundaráðgjöfum hlýddu á fræðilega umföllun um eineltismál og  rifjuðu upp nýtingu gátlista á félagsfærni barna. Einnig fengu þeir kynningu á nýrri reglugerð um einelti á vinnustöðum og loks gerði Vanda Sigurgeirsdóttir dósent við HÍ grein fyrir þróunarverkefninu Allir vinir sem hún hefur stýrt í samstarfi við skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.


Segja má að rauði þráður fundarins hafi verið sá að einelti er flókið félagslegt vandamál, miklu fremur en vandamál ákveðinna einstaklinga. Áhrifaríkasta leiðin til að stuðla að skóla- og frístundastarfi án eineltis er því að skapa skólabrag/menningu sem einkennist af virðingu og trausti, þar sem rík áhersla er lögð á eflingu félagsfærni allra barnanna.