Á morgun, föstudaginn 21. október, mun stjórnmálafræðingurinn Silja Bára Ómarsdóttir halda hádegisfyrirlestur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur undir yfirskriftinni: Frá Watergate til WikiLeaks.
Efni fyrirlestursins tengist sýningu safnsins Portrett – handhafar Hasselblad-verðlaunanna en þar má sjá verkið The Family eftir Richard Avedon sem samanstendur af portrett myndum af helsta áhrifafólki úr bandarísku þjóðlífi, stjórnmálamönnum, forstjórum stórfyrirtækja, fjölmiðlafólki og fleirum. Myndirnar voru teknar stuttu eftir Watergate hneykslið (1972) og á meðal þeirra sem voru mynduð var Katherine Graham, útgefandi dagblaðsins Washington Post, sem ljóstraði upp um hneykslið og W. Mark Felt, hinn svokallaði “Deep throat”.
Watergate er eitt þekktasta hneykslismál allra tíma. Það leiddi til afsagnar Nixons nokkru síðar og kom þá glögglega í ljós hve lekar geta haft mikil áhrif á stjórnmál. Þá og í Pentagon-skjala málinu voru einstaklingar á bak við lekana, en í dag koma þeir gjarnan frá samtökum "hakkara" á borð við WikiLeaks. Eftir stutta umræðu um lekamál ræðir Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræðingur áhrif lekamála á kosningabaráttu Clinton og Trump í dag og stöðunni á henni í víðara samhengi.
Fyrirlesturinn hefst kl. 12:00, allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Um Silju Báru:
Silja Bára Ómarsdóttir hefur starfað sem aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá árinu 2006 og kennir m.a. alþjóðastjórnmál, bandarísk stjórnmál og samningatækni. Hún lauk BA-gráðu (með láði) frá Lewis & Clark College í Portland, Oregon og MA-gráðu frá University of Southern California. Nú stundar hún doktorsnám við University College Cork á Írlandi. Silja Bára sat í Stjórnlagaráði sumarið 2011 og hefur áður starfað á Jafnréttisstofu og sinnt ýmsum félagsstörfum, m.a. í Félagi stjórnmálafræðinga, Kvenréttindafélagi Íslands, Femínistafélagi Íslands og Landsnefnd UNIFEM (nú UN Women). Rannsóknir hennar eru á sviði utanríkis- og öryggismála og samspils jafnréttis- og alþjóðamála. Árið 2015 gaf hún út bókina Rof: Frásagnir kvenna af fóstureyðingum sem var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna og viðurkenningar Hagþenkis sama ár.