Frá býli til borgar

Mannlíf Menning og listir

""
Að venju verður mikið um að vera á Árbæjarsafni næst komandi sunnudag, 21. ágúst. Yfirskrift dagsins er Frá býli til borgar og er það við hæfi í tilefni af 230 ára afmæli Reykjavíkurborgar.
Hvergi er betra en á Árbæjarsafni að virða fyrir sér þær miklu breytingar sem hafa orðið í borginni á undanförnum öldum. Á sunnudaginn gefst gestum kostur á að kíkja í heimsókn til gullsmiðsins sem situr að störfum í Þingholtsstræti 9 og í prentsmiðjunni í Miðhúsi verður prentari að störfum.
 
Í tilefni þess að það er nú sunnudagur verður boðið upp á lummur í Hábæ. Í Árbæ situr húsfreyjan og þeytir rokkinn og í haga má sjá búsmalann á beit.
Að vanda verður heitt á könnunni í Dillonshúsi.


Frítt inn fyrir yngri en 18 ára, 70 ára og eldri og öryrkja.