Flokkunarstampar verða settir upp fyrir pappír, plast, drykkjarumbúðir og blandaðan úrgang í Hljómskálagarðinum.
Flokkun úrgangs á opnum svæðum er í takt við stefnu Reykjavíkurborgar um aukna flokkun og skil endurvinnsluefna. Nú býðst borgarbúum að skila fjórum úrgangsflokkum í stampa í Hljómskálagarðinum þ.e. pappírsefnum, plastumbúðum og drykkjarumbúðum með skilagjaldi auk blandaðs úrgangs. Þar er umferð gangandi og hjólandi vegfarenda hæfileg mikil til að þessir stampar nýtist.
Í Reykjavík eru nú um 1.300 götustampar víðs vegar um borgina ætlaðir undir efni sem til fellur á leið fólks um borgarlandið. Það sem safnast í þá hefur hingað til farið í urðun en tilkoma flokkunarstampanna mun auka endurvinnslu í borginni. Ríflega 210 kg af blönduðum úrgangi safnast að jafnaði á hverjum degi í stampana í miðborginni og hefur rannsókn á samsetningu hans sýnt að það er mest plast, pappír og pappi og lífræn efni, þ.e. hundaskítur, sem berst í stampana.
Flokkunarstampar eru framtíðin
Stamparnir eru sextán og voru áður á Skólavörðustíg. Umferðin þar reynist of mikil og því þarf töluvert stærri ílát þar. Fyrst um sinn verða þar hefðbundnir stampar. En flokkunarstampar í Reykjavík verða settir upp á næstu árum á almenningssvæðum í samræmi við aðgerðaráætlun í úrgangsmálum.
Flokkunarstamparnir eru með lituð lok og leiðbeinandi merkingar til að aðgreina úrgangsflokkana og aðstoða íbúa og gesti borgarinnar við að skila úrganginum í rétt hólf. Endurvinnsluefnunum verður komið til vinnslu með tilheyrandi umhverfislegum ávinningi.
Fólk sem á leið um Hljómskálagarðinn er eindregið hvatt til að nýta sér stampana og leggja þannig lóð á vogaskálar aukinnar flokkunnar og skila til endurvinnslu í Reykjavík. Flokkunarstampar verðar settir upp í fleiri stöðum eftir því sem færi gefst.
Fylgst verður með endurvinnsluefnunum sem berast í stampana til að meta árangurinn af flokkun í þessa stampa í Hjómskálagarðinum.