Fjöruverðlaunin 2016 veitt í Höfða

Mannlíf Menning og listir

""
Verðlaunin eru nú veitt í 10. sinn og hafa unnið sér sess í  bókmennta- og menningarlífi landsmanna. Tilgangur verðlaunanna er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða. Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi. Þau eru veitt árlega fyrir bækur í þremur flokkum: Fagurbókmenntir, fræðibækur og rit almenns eðlis og barna- og unglingabækur
 
 
 
 
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO tók á móti gestum í Höfða en hann er verndari verðlaunanna. Hann ávarpaði samkomuna og bauð gesti velkomna í Höfða að því loknu hófst verðlaunaafhendingin. Venju samkvæmt fengu verðlaunahafar keramik-egg eftir listakonuna Koggu og frú Vigdís Finnbogadóttir steig á svið og afhenti verðlaunahöfum gjafabréf fyrir dvöl að Kolkuósi í Skagafirði.
 
Verðlaunin hlutu:
 
Í flokki fagurbókmennta:

Tvöfalt gler eftir Halldóru K. Thoroddsen


Í flokki barna- og unglingabókmennta:

Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur


Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis:

Heiður og huggun – Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld eftir Þórunni Sigurðardóttur


Rökstuðningur dómnefnda
 
Frá dómnefnd í flokki fagurbókmennta

Tvöfalt gler eftir Halldóru K. Thoroddsen

Útgefandi: 1005 Tímaritaröð / Bókaútgáfan Sæmundur

Í Tvöföldu gleri er skrifað um konu á áttræðisaldri sem hefur nýlega misst eiginmann sinn. Þegar hún lendir óvænt í ástarsambandi stendur hún frammi fyrir spurningum um réttmæti þess að verða ástfangin á efri árum, en jafnframt sýnir saga hennar á einstakan máta fram á fegurð slíkra ásta.

Tvöfalt gler er þétt, skrifuð af einstöku næmi og hún er „stór“ þótt hún sé stutt. Höfundur dregur upp eftirminnilega mynd af lífsþorsta og ástarþrá manneskju sem dafnar og vex þegar dauðinn er allt í kringum hana. Halldóru Thoroddsen tekst sérlega vel að lýsa miklum tilfinningum í fáum en dýrmætum orðum. Verðlaunasagan Tvöfalt gler er lágstemmd og fögur - og stíllinn tær, ljóðrænn og sindrandi.
 
Frá dómnefnd í flokki barna- og unglingabókmennta

Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur

Útgefandi: Forlagið

Vetrarfrí er spennandi unglingabók með sterka samsvörun til nútímans og heimsmálanna. Bókin færir þær hörmungar sem fylgja lífi flóttamannsins nær unglingum og lesendum. En þó að sagan lýsi óhugnaði og blóðugu ofbeldi er mikill húmor í henni og því um leið líka stórskemmtileg.

Í sögunni er áhrifamikill stígandi þar sem tilveran tekur miklum stakkaskiptum; frá hversdagslegri  tilveru unglinga og barna yfir í ofsafengin átök. Þrátt fyrir umbyltingu á tilverunni heldur lífið þó áfram og jafnvel í stríði heldur manneskjan áfram að vera manneskja með sína drauma og væntingar. Og í stríði halda unglingar líka áfram að vera ástfangnir.
 
Frá dómnefnd í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis

Heiður og huggun – Erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld eftir Þórunni Sigurðardóttur

Útgefandi: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Bókin hefur að geyma frumrannsókn Þórunnar Sigurðardóttur á lítt rannsökuðu efni. Í henni  rýnir höfundur í íslensk tækifæriskvæði frá árnýöld, sem ort voru í minningu látinna, og sýnir fram á að þau heyri undir mismunandi kvæðagreinar. Þau 17 kvæði sem birt eru í bókinni hafa hingað til verið varðveitt í handritum og sjást nú flest í fyrsta sinn á prenti, en þar á meðal eru tvö kvæði eftir íslenskar konur.

Auk fræðilegrar dýptar hefur bókin mikla breidd í efnistökum. Þórunn fer ótroðnar slóðir í rannsókn sinni og greiningu, skoðar félagslegt og sálrænt hlutverk kvæðanna út frá samfélagsviðmiðum á ritunartíma þeirra og ber saman við hugmyndir nútímans. Jafnframt skoðar hún tengsl kvæðanna við heiður hins látna og einnig hvernig skáld gátu nýtt sér ritun erfiljóða til að auka eigin metorð.
 
Einnig voru tilnefndar:
 
Fagurbókmenntir:

• Humátt eftir Guðrúnu Hannesdóttur

• Mörk eftir Þóru Karítas Árnadóttur
 
Barna- og unglingabókmenntir:

• Koparborgin eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur

• Randalín, Mundi og afturgöngurnar eftir Þórdísi Gísladóttur og Þórarin M. Baldursson


Fræðibækur og rit almenns eðlis:

• Rof – Frásagnir kvenna af fóstureyðingum eftir Silju Báru Ómarsdóttur og Steinunni Rögnvaldsdóttur

• Ástin, drekinn og dauðinn eftir Vilborgu Davíðsdóttur
 
Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2015 skipa:


Fagurbókmenntir:

• Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir, íslenskukennari og málfarsráðgjafi hjá RÚV

• Salka Guðmundsdóttir, leikskáld og þýðandi

• Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfundur
 
Barna- og unglingabókmenntir:

• Júlía Margrét Alexandersdóttir, blaðamaður

• Þorbjörg Karlsdóttir, bókasafnsfræðingur

• Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir, teiknari og hreyfimyndagerðamaður
 
Fræðibækur og rit almenns eðlis:

• Erla Elíasdóttir Völudóttir, þýðandi

• Erna Magnúsdóttir, líffræðingur

• Sigurrós Erlingsdóttir, íslenskukennari