Fjórar skólalóðir endurgerðar í sumar

Skóli og frístund

""
Boðnar verða út framkvæmdir við fjórar skólalóðir í sumar fyrir um 225 milljónir króna. Borgarráð samþykkti tillögu þess efnis á fundi sínum 17. mars. 
Ráðist verður í fyrsta áfanga við endurgerð á lóðum leikskólanna Bakkaborgar og Hraunborgar í Breiðholti og lokið verður við endurbætur á lóðum og leiksvæðum við Breiðagerðisskóla og Ölduselsskóla. Framkvæmdir munu hefjast í maí og ljúka í september.
 
74 milljónum króna verður varið til endurgerðar lóðarinnar við Breiðagerðisskóla og sömu upphæð til að klára endurbætur á lóðinni við Ölduselsskóla. Hönnun og framkvæmd við endurbætur á lóðinni við leikskólann Hraunborg mun kosta um 50 milljónir króna og endurgerð lóðar við Bakkaborg um 25 milljónir króna.
 
Þá er stefnt að því að úttekt á öðrum skólalóðum sem þarf að endurbæta.