Gríðarlega góð stemning er á Fjölmenningardeginum sem nú stendur yfir í Hörpu. Kynningar og sölubásar eru innandyra og í tjaldi fyrir utan er boðið upp á rétti frá ýmsum löndum. Skemmtidagskrá er svo í Kaldalóni.
Fjölmenningardagurinn hófst formlega með fjölþjóðlegri skrúðgöngu frá Skólavörðuholti klukkan 13. Þátttakendur voru margir hverjir klæddir þjóðbúningum frá hinum ýmsu löndum sem lífgaði upp á gönguna. Þegar í Hörpu kom hófst hátíðin með kynningar- og sölubásum innandyra og matarmarkaði í tjaldi fyrir utan. Í Kaldalóni er svo skemmtidagskrá þar sem boðið var upp 16 atriði meðal annars dans frá Filipseyjum, Mexikóskt íslenskt tónlistaratriði, Balkandans, Múltíkúltikórinn og margt fleira.
Ljóst er að dagurinn á sér fastan sess í hugum borgarbúa því mikill fjöldi fólks er í Hörpu og troðið í Kaldalóni þar sem skemmtiatriðin standa yfir. Endilega leggið leið ykkar í Hörpu og njótið fjölbreytileikans sem þar er í boði.