Fjölsótt ráðstefna leikskólastarfsfólks

Skóli og frístund

""
Vel á sjöunda hundrað starfsmenn leikskólanna í borginni sóttu ráðstefnuna Gerðu og ég sé - segðu og ég heyri!  sem haldin var í dag. Þar voru flutt áhugaverð erindi um samskipti barna, jafnrétti og fjölmenningarlegt starf í leikskólum. 
Fjallað var um margvíslegar faglegar áskoranir leikskólastarfsfólks á ráðstefnunni sem er sú stærsta sem haldin hefur verið fyrir það á vegum skóla- og frístundasviðs til þessa.



Hrönn Pálmadóttir, lektor við HÍ, greindi frá rannsókn sinni á samskiptum og leik leikskólabarna á aldrinum eins til þriggja ára. Fram kom í erindi hennar mikilvægi þess að gefa gaum að tjáningu og samskiptum barna í ljósi þess að leikskólinn á að vera án aðgreiningar.
 
Jóhanna Kristín Jónsdóttir þroskaþjálfi sagði frá afar áhugaverðu jafnréttisverkefni í leikskólanum Geislabaugi. Í máli hennar kom m.a. fram að í leikskólanum hefði farið fram greining á leikföngum og efnivið út frá jafnréttissjónarmiðum og allt sem talið hefði verið kynjað og ýtti undir staðalmyndir kynja hefði verið tekið út. Afrakstur þessa verkefnis er m.a. gátlisti um jafnrétti í leikskólastarfi. 
 
Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá SFS, talaði um mikilvægi fjölbreytileikans í leikskóla án aðgreiningar, fjölbreyttar fjölskyldugerðir, heimamenningu og tungumál. Í máli hennar kom m.a. fram að skortur væri á leiðsögn í aðalnámskrá leikskóla um nám barna með annað móðurmál en íslensku - og jafnframt hversu mikilvægt væri að jafna tækifæri barna til þess að ná árangri i leik og námi. 
 
Aðalheiður Stefánsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í Reynisholti, sagði frá áhugaverðu þróunarverkefni og kallaði hún erindi sitt Að lesa og leika list er góð. Verkefnið sem hún sagði frá miðaði að því að efla orðaforða og málnotkun barna í gegnum hlutverkaleik og efla foreldrasamvinnu um læsishvetjandi umhverfi.  
 
Að lokum tók Dr. Arna Jónsdóttir, lektor við HÍ, saman helstu púnkta úr erindunum. 
 
Óhætt er að segja að þessi fjölsótta fagráðstefna leikskólastarfsfólks hafi tekist vel, dagskrá var brotin upp með skemmtilegum myndbrotum úr leikskólastarfi víðs vegar um borgina og allir fengu eitthvað umhugsunarvert með sér heim til að bæta fagstarfið í leikskólanum.