Nemendur og starfsmenn Rimaskóla skörtuðu grímu-og furðufatabúningum í upphafi skóladags á öskudegi.
Mikil hátíð stóð fyrir dyrum á öskudaginn í samstarfi við Foreldrafélag skólans.
Nemendur byrjuðu skóladaginn með því að búa til öskupoka með aðstoð kennara og stuðningsfulltrúa. Í nestistíma mættu foreldrar með skúffukökur í hundruða tali. Forsvarsmenn MS voru svo rausnarlegir að gefa öllum 550 nemendum skólans mjólkurdrykk til að skola kökunum niður. Efnt var til grímuballs í hátíðarsal Rimaskóla þar sem Eyrún íþróttakennari og Sigurður frá Leynileikhúsinu stýrðu dansi og leikjum. Rúsínan í pylsuendanum voru síðan tónleikar söngstjörnunnar Öldu Dísar, sigurvegara í „Iceland Got Talent 2015“. Alda Dís gaf allt í sönginn enda frábær stemmning í salnum og rækilega tekið undir frá nemendum. Öskudagsgleðinni lauk með pítsuveislu sem skólinn bauð upp á. Um hádegisbilið var skóla lokið og flestir nemendur stefndu niður í bæ að syngja og sníkja sér nammi eins og hefðin segir til um.