Skráningu er lokið!
Námskeiðslýsingar
1) 6 + 1 vídd ritunar
Markhópur: Allir kennarar
Markmið námskeiðsins: Að kennarar kynnist aðferð og orðaforða 6 + 1 víddar ritunar, geti metið ýmsar tegundir ritunarverkefna út frá þeim og undirbúið kennslustundir þar sem víddirnar eru kenndar og þjálfaðar.
Inntak námskeiðsins: Sjö víddir ritunar eru kynntar, þ.e. hugmyndir, skipulag, rödd, orðaval, setningaflæði, rithefðir og framsetning. Hverri vídd fylgir matsrammi sem er lýsandi fyrir eiginleika góðrar ritunar. Þátttakendur lesa margs konar texta og meta út frá einni vídd í senn, skrifa eigin ritverk og meta í samvinnu við aðra, ræða saman og leiðbeina hver öðrum.
Fjöldi kennslustunda: 6
Kennarar: Kennarar á vegum SÍSL-verkefnisins sem hafa reynslu af því að vinna með 6+1 vídd ritunar í sinni kennslu.
Hvenær: Fimmtudagur 11. ágúst kl. 8:30 - 15:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
2) Háværir strákar og sætar stelpur
Markhópur: Allir grunnskólakennarar
Markmið: Að vekja kennara til umhugsunar um mikilvægi jafnréttisfræðslu og þá ekki síst að læra að bera kennsl á staðalmyndir sem geta verið hamlandi og jafnvel skaðandi fyrir nemendur. Markmiðið er að veita kennurum verkfæri til að brjóta upp staðalmyndir og til að skapa jafnréttisvitund í skólastofunni með því að flétta jafnrétti inn í aðrar námsgreinar á einfaldan hátt.
Inntak: Námskeiðið mun fara fram með fyrirlestri, hópavinnu og umræðum.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur.
Hvenær: 10. ágúst kl. 13 – 16
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Er í boði fyrir alla grunnskólakennara
Markmið: Að efla kennara í að tala á opinskáan og vandræðalausan hátt við nemendur um kynferðismál. Að kennarar öðlist meiri færni í að ræða um tilfinningalega hluta kynfræðslunnar auk líffræðilega hlutans.
Inntak: Námskeiðið mun fara fram með fyrirlestri, hópavinnu og umræðum. Fjöldi kennslustunda:
Kennari: Fyrirlesari er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur. Tveir gestafyrirlesarar munu koma að námskeiðinu, Kynfræðingur og Jafningjafræðari frá Samtökunum ´78
Fjöldi kennslustunda: 10
Hvenær: 11. ágúst kl. 13 – 16. Síðari hluti námskeiðs verður í lok október eða byrjun nóvember.
Hvar: Hefst í Langholtsskóla
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Áhersla er á kennara í lífsleikni en námskeiðið er einnig fyrir alla þá sem temja vilja sér kennslu með opnum spurningum og samræðum.
Markmið: Námskeiðið er ætlað kennurum er hug hafa á að nýta sér kennslubókina Gagnrýni og gaman sem kom út á vordögum. Markmið þess er að auka leikni þátttakenda í meðferð spurninga sem halda samræðum gangandi.
Inntak: Farið verður í uppbyggingu spurninga og verða þátttakendur látnir spreyta sig á mótun þeirra.
Fjöldi kennslustunda: 8
Kennari: Jón Thoroddsen, kennari og höfundur bókarinnar Gagnrýni og gaman.
Hvenær: 10. og 11. ágúst, kl. 13 – 16 báða dagana.
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markmið: Meginmarkmið K-PALS er að byggja undir lestrarnám barna með því að kenna þeim samvinnunám og aðferðir til að efla hljóðkerfisvitund, hljóðaþekkingu og umskráningarfærni þeirra. Aðaláherslan er að þjálfa börn í að tengja hljóð og bókstafi, þekkja lestraráttina og virkja nemendur í námi sínu. Öll börn fá tækifæri til að taka að sér mikilvæg hlutverk um leið og þau læra aðferðir samvinnunáms.
Inntak: Kennarar fá kynningu á K-PALS og leiðsögn við að innleiða vinnuaðferðirnar í kennslu yngstu grunnskólanemendanna og hvernig best sé að standa að skipulagningu og undirbúningi kennslunnar.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Kennarar á vegum SÍSL-verkefnisins
Hvenær: 11. ágúst kl. 13 - 16:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Allir kennarar
Markmið: Að auka þekkingu og hæfni þátttakenda í að nota leiðsagnarmat í kennslu í því skyni að auka áhuga og ábyrgð nemenda á námi sínu og ná þannig betri árangri.
Inntak: Námskeiðið er samsett úr fyrirlestrum, umræðum og hagnýtri verkefnavinnu
Fjöldi kennslustunda: 5
Kennari: Edda Gíslrún Kjartansdóttir, aðstoðarskólastjóri og Nanna Kristín Christiansen verkefnastjóri og ritstjórarar Krítarinnar.
Hvenær: 11. ágúst kl. 13 – 16:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Einkum ætlað list- og verkgreinakennurum
Markmið: Að kynnast leikbrúðugerð í fjölbreyttum efnivið, og nýta brúðuna sem verkfæri til tjáningar í hvers kyns aðstæðum í skólastarfi
Inntak: Kynnt verður nýtt handverk og listsköpun, deilt verður upplýsingum, kunnáttu og færni. Námskeiðið býður upp á samþættingu námsgreinanna.
Fjöldi kennslustunda: 16
Kennarar: Guðrún Gísladóttir, Ólöf Ágústína Stefánsdóttir list-og verkgreinakennarar ásamt Sigríði Sunnu Reynisdóttur brúðumeistara.
Hvenær: 10. og 11. ágúst, kl. 8:30 – 16 báða dagana
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Allir grunnskólakennarar
Markmið: Að grunnskólakennarar fái innsýn í aðferðafræði markþjálfunar til að efla færni í kennslu og skilvirkari samskipti við nemendur. Einnig mun þetta efla samskiptafærni við foreldra og samstarfsmenn ásamt auka vellíðan kennarans og árangur hans
Inntak: Námskeiðið er kennt bæði með fyrirlestrum og er mikil áhersla lögð á verklegar æfingar. Farið verður í 11 grunnhæfnisþætti aðferðafræði markþjálfunnar. Gerðar eru æfingar þar sem þáttakendur geta æft sig í að nota þessa aðferðafræði. Einnig verður sýnishorn þar sem kennarinn (Matilda) tekur einhvern sjálfboðaliða (þáttakanda úr sal) í markþjálfun og hópurinn rýnir í aðferðina á meðan.
Fjöldi kennslustunda: 22
Kennari: Matilda Gregersdotter og Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, ACC markþjálfar
Hvenær: 10. og 11.ágúst, kl. 8:30 – 13 báða dagana og 23. ágúst, 6. og 20. sept.
Hvar: Langholtsskóli. Framhald í Borgartúni 12 í Reykjavík
Þátttökugjald: kr. 14.000
9) PALS
Markhópur: Kennarar í 2. – 6. bekk
Markmið: Að gefa kennurum verkfæri til að þjálfa á sama tíma hóp af nemendum í lestri með jafningjamiðaðri nálgun eða samvinnunámi. PALS virkar mjög vel samhliða öðrum lestrarkennsluaðferðum sem notaðar eru í almennri kennslu og í sérkennslu. Rannsóknir á PALS aðferðinni í lestri hafa staðfest að flestir nemendur sem fá PALS þjálfun ná betri árangri í lestri en aðrir sem ekki fá PALS þjálfun.
Inntak: Kennarar fá kynningu á PALS-kennsluaðferð í lestri hjá nemendum í 2. - 6. bekk og leiðbeiningar um hvernig best er að standa að innleiðingu nýrra kennsluaðferða.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennarar: Kennarar á vegum SÍSL-verkefnisins sem hafa reynslu af því að vinna með PALS-lestrarkennslu í sinni kennslu.
Hvenær: 11. ágúst kl. 8:30 – 12:00
Hvar: Í Langholtsskóla
Þátttökugjald: 4000
Markhópur: Einkum verkgreinakennarar
Markmið: Að læra á stafræn mælitæki sem notuð eru í rafiðnaði. Læra grundvallaratriði í rafiðnaði, útreikninga og tengingar íhluta. Læra að lóða.
Inntak: Tilraunir með rafmagn. Útskýringar á töflu. Æfingar í lóðningu íhluta. Skoðað verður virkni íhluta með rafrása forriti.
Fjöldi kennslustunda: 10
Kennari: Valdemar Gísli Valdemarsson
Hvenær: 10. og 11. ágúst kl. 8:30 – 12:10 báða dagana
Hvar: Raftækniskóli Tækniskólans
Þátttökugjald: kr. 4.000 + 5.000 efnisgjald = kr. 9.000
Markhópur: Einkum umsjónakennarar
Markmið: Samstarf kennara við foreldra tekur æ meiri tíma af starfi kennara. Miklu skiptir að þetta samstarf sé gott og að það skili árangri. Markmið námskeiðsins er að efla kennara til að stýra samstarfinu á faglegan hátt. Megin áherslan verður á kynningu á samtalsfærni (viðtalstækni).
Inntak: Fyrirlestur og æfingar
Fjöldi kennslustunda: 5
Kennari: Nanna Kristín Christiansen, höfundur bókarinnar Skóli- og skólaforeldrar – ný sýn á samstarfið um nemandann.
Hvenær: 10. ágúst kl. 13- 16:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
12) Hugskot - skamm-, fram- og víðsýni
Markhópur: Allir kennarar
Markmið: Að efla kunnáttu og færni í að beita gagnrýnni hugsun með því að greina flokkanir, staðalímyndir, fordóma, og skilaboð í samfélaginu um jafnrétti.
Inntak: Bókin Hugskot – skamm-, fram- og víðsýni (IÐNÚ 2016) er handbók fyrir alla sem vilja taka þátt í baráttunni fyrir betra samfélagi. Áhersla er lögð á að kunna skil á mannréttindum, vera læs á samtímann og þora að mótmæla. Einstakir kaflar bókarinnar fjalla um flokkanir, staðalímyndir, fordóma, jafnrétti, friðarmenningu og borgaravitund. Hverjum kafla fylgir efni til frekari umhugsunar fyrir þá sem vilja nota bókina til kennslu.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Gunnar Hersveinn og Friðbjörg Ingimarsdóttir höfundar bókarinnar Hugskot.
Hvenær: 11. ágúst kl. 8:30 – 11:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
13) Stærðfræði fyrir yngsta stig – fjölbreyttir kennsluhættir
Markhópur: Kennarar nemenda á yngsta stigi
Markmið: Að efla kennara sem kenna á yngsta stigi í fjölbreyttum kennsluháttum í stærðfræði.
Inntak: Á námskeiðinu verður fjallað um skipulag stærðfræðikennslu. Kynntar verða leiðir til að skipuleggja vetrarstarfið þar sem áhersla er lögð á hlutbundna vinnu og umræður nemenda og kennara um inntak stærðfræðinámsins.
Fjöldi kennslustunda: 8
Kennari: Jónína Vala Kristinsdóttir, lektor við MVSHÍ
Hvenær: 10. ágúst kl. 13-15:50 og 11. ágúst kl. 8:30 – 11:30 .
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4.000
Markhópur: Kennarar nemenda á miðstig
Markmið: Að auka hæfni kennara í að kenna rúmfræði á fjölbreyttan hátt.
Inntak: +A námskeiðinu verður fjallað um inntak rúmfræðináms á miðstigi. Skoðuð verða dæmi um verkefni þar sem unnið er með rúmfræði á fjölbreyttan hátt. Kennarar fá tækifæri til að prófa verkefni sem byggja á listum og listsköpun ásamt því að nota forritið Geogebra til að teikna og skoða form.
Fjöldi kennslustunda: 8
Kennari: Margrét S. Björnsdóttir, aðjunkt á MVSHI
Hvenær: 10. kl. 12:30 – 16:00 og 11. ágúst kl. 08:30-11:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4.000
Markhópur: Kennarar sem kenna á unglingastigi
Markmið: Að efla hæfni kennara í námsmati í samræmi við áherslur aðalnámskrár grunnskóla, 2011.
Inntak: Fjallað verður um fjölbreyttar leiðir við námsmat þar sem sérstök áhersla er lögð á leiðsagnarmat. Rætt verður um meginhugmyndir mennta- og menningarmálaráðuneytisins um námsmat við lok grunnskóla og greint frá rannsókn á því hvernig nokkrir skólar stóðu að lokanámsmati í stærðfræði vorið 2016.
Kennari: Guðný Helga Gunnarsdóttir, lektor á MVSHÍ
Hvenær: 11. ágúst kl. 8:30 – 11:30.
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Kennarar sem kenna á mið og unglingastigi
Markmið: Að skoða hvernig hægt er að undirbúa sama ritunarverkefni með margbreytilegan nemendahóp í huga. Byggist á bókinni Beinagrindur í ritun í þýðingu Sigríðar Nönnu Heimisdóttur og Hrefnu Birnu Björnsdóttur og hugmyndafræði ABC, þ.e. þrískipt ritunarverkefni út frá sama kennsluefni og flokkunarkerfi Bloom og félaga.
Inntak: Þátttakendur velja sér textagerð til að vinna með og undirbúa þrískipt verkefni sem tekur mið af margbreytilegum nemendahópi
Fjöldi kennslustunda: 3
Kennari: Hrefna Birna Björnsdóttir og Nanna Sigríður Heimisdóttir grunnskólakennarar.
Hvenær: 10. ágúst kl. 8:30 – 11:10
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Kennarar á mið og unglingastigi
Markmið: Í nýju námsefni í íslensku er nálgun og efnistök með breyttu sniði. Þessari málstofu er ætlað að skoða hvernig komið er til móts við áherslur í aðalnámskrá í útgefnu námsefni í íslensku á mið- og unglingastigi. Skoðað verður hvað hefur breyst og hvernig efnistök taka mið af breyttum áherslum. Hvaða aðferðir nota höfundar til að kveikja á perunni, efla neistann og viðhalda loganum? Hvernig nýtist það kennurum og hvernig getur námsefni í íslensku komið til móts við vinnu kennara í því að efla læsi og lesskilning?
Inntak: Fyrirlestur og umræður
Fjöldi kennslustunda: 1
Kennari: Sigríður Wöhler ritstjóri hjá Menntamálastofunun
Hvenær: 10. ágúst kl. 11-12
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: 0
18) Kynning: Litróf náttúrunnar. Eðlisfræði 1, 2 og 3
Markhópur: Kennarar sem kenna á unglingastigi
Markmið: Að þátttakendur kynnist uppbyggingu og kennslufræðilegum áherslum í nýju námsefni í eðlisfræði fyrir unglingastig grunnskóla.
Inntak: Á undanförnum árum hafa komið út samtals sex bækur í bókaflokknum Litróf náttúrunnar, þrjár bækur í líffræði, sem komu fyrst út á árunum 2010 og 2011, og aðrar þrjár í eðlisfræði sem komið hafa út á árunum 2014–2016. Þetta efni er allt þýtt og staðfært úr sænsku. Farið verður í stuttu máli yfir efni og uppbyggingu eðlisfræðibókanna og bent á tengsl efnisins og hvernig mögulegt er að nálgast það í kennslu. Bent verður á ítar- og stuðningsefni sem til boða stendur, meðal annars á vef Menntamálastofnunar og víðar.
Fjöldi kennslustunda: 1
Kennari: Tryggvi Jakobsson ritstjóri hjá Menntamálastofnun
Hvenær: 10. ágúst kl. 12:30 – 13:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: 0
Markmið: Að kynna nýjar námsbækur í stærðfræði á unglingastigi ásamt fylgiefni
Inntak: Árið 2014 hófst útgáfa á Skala, námsefni í stærðfræði fyrir unglingastig. Út er komið námsefnið Skali 1A og 1B og Skali 2A og 2B. Nú er unnið að því að leggja lokahönd á vinnu við Skala 3A og 3B. Rýnt verður í uppbyggingu og innihald námsefnisins ásamt því að skoða fylgiefni við bækurnar.
Farið verður yfir hvernig norsku höfundar Skala hafa leitast við að setja námsefnið fram á faglegan hátt með rökrétta uppbyggingu og framvindu námsins í huga. Rýnt verður í markmið námsefnisins sem eru skýr og nákvæm jafnt fyrir nemendur sem kennara og hvernig hægt er að aðlaga námsefnið sem samanstendur af hagnýtum dæmum og verkefnum að þörfum allra nemenda í blönduðum námshópum.
Fjöldi kennslustunda: 1
Kennari: : Auður Bára Ólafsdóttir, ritstjóri í stærðfræði hjá Menntamálastofnun
Hvenær: 10. ágúst kl. 14- 15
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: 0
Markhópur: Allir kennarar.
Markmið: Að kynna fjölbreytta notkunarmöguleika rafbóka sem verkfæris í skólastarfi og kynna helstu möguleika forritsins Book Creator.
Inntak: Á námskeiðinu verðir farið yfir hvernig notkun rafbóka getur auðgað nám nemenda og stutt við fleiri leiðir til tjáningar en ritaður texti gerir. Unnið verður með smáforritið Book Creator (sem til er fyrir iOs, Android og Windows stýrikerfi) og fjallað um eftirfarandi viðfangsefni:
Almennt um notkun rafbóka:
•Fjölbreytt dæmi um skólaverkefni
•Um rafbók sem samskiptabók milli heimila og skóla
•Um ábyrgð og mat nemenda á eigin námi með skráningu námsferlis í rafbók
Helstu verkfæri Book Creator:
•Hljóð, myndir, textar, myndskeið, form og teikningar
•Mismunandi leiðir til að flytja rafbækur á milli tækja
•Leiðir til að flytja rafbækur úr forritinu (sem ePub, PDF og myndbönd á YouTube)
Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér spjaldtölvu á námskeiðið.
Fjöldi kennslustunda: 5
Kennari: Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 10. ágúst kl. 8:30 – 12:10
Þátttökugjald kr. 4000
Markhópur: Allir kennarar
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kynna fjölbreytta möguleika snjalltækja í skólastarfi og gefa yfirlit yfir margvíslegar bjargir sem kennarar sem eru að stíga sín fyrstu skref í notkun snjalltækja í skólastarfi geta nýtt sér.
Inntak: Á námskeiðinu verður fjallað um möguleika spjaldtölva í skólastarfi, hagnýtum dæmum um notkun spjaldtölva miðlað og gagnlegar upplýsingaveitur á netinu kynntar. Farið verður í helstu stillingar og grunnatriði við notkun spjaldtölva og valin smáforrit skoðuð sérstaklega.
Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér spjaldtölvu á námskeiðið.
Fyrirkomulag: Kynningar, hagnýt og fjölbreytt verkefnavinna og umræður.
Fjöldi kennslustunda: 5
Kennarar: Rakel. G. Magnúsdóttir og Bjarndís Fjóla Jónsdóttir.
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 10. ágúst kl. 13-16:30
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Allir.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kynna möguleika skýjalausna til námsumsjónar, tengja við samvinnunámsmöguleika og beina athyglinni að notkun Google Apps for Education (GAFE).
Inntak: Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
• Skýjalausnir, samvinnunám og námsumsjón á neti
• Skólaþróunarverkefni með GAFE
• Helstu verkfæri í GAFE: skráarsvæðið (Google Drive), skjöl, töflureikna, skyggnur, eyðublöð og ýmsar viðbætur.
• Skólastofan: Google Classroom
Kennari: Björgvin Ívar Guðbrandsson og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 10. ágúst kl. 13 – 16:30
Þátttökugjald: kr. 4000
23) Spjaldtölvur á yngsta stigi
Markhópur: Kennarar á yngsta stigi.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kynna fjölbreytta möguleika snjalltækja í skólastarfi og gefa yfirlit yfir margvíslegar bjargir sem kennarar nemenda á yngsta stigi geta nýtt sér
Inntak: Á námskeiðinu verður verður fjallað um möguleika spjaldtölva í skólastarfi, hagnýtum dæmum um notkun spjaldtölva á yngsta stigi miðlað og gagnlegar upplýsingaveitur á netinu kynntar. Skapandi notkun og valin smáforrit sem tengjast stærðfræði og fjölbreyttu læsi verða til skoðunar.
Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér spjaldtölvu á námskeiðið.
Fyrirkomulag: Kynningar, hagnýt og fjölbreytt verkefnavinna og umræður
Fjöldi kennslustunda: 10
Kennari: Rakel. G. Magnúsdóttir og Bjarndís Fjóla Jónsdóttir
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 10. og 11. ágúst kl.8:30 – 12:10 báða dagana
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Kennarar á miðstigi.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kynna fjölbreytta möguleika snjalltækja í skólastarfi og gefa yfirlit yfir margvíslegar bjargir sem kennarar nemenda á miðstigi geta nýtt sér
Inntak: Á námskeiðinu verður verður fjallað um möguleika spjaldtölva í skólastarfi, hagnýtum dæmum um notkun spjaldtölva á miðstigi miðlað og gagnlegar upplýsingaveitur á netinu kynntar. Fjölbreytt og skapandi notkun sem styður við nám og kennslu verður í brennidepli. Vinsæl verkfæri eins og Kahoot , Padlet og QR-kóðar verða kynnt til sögunnar.
Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér spjaldtölvu á námskeiðið.
Fyrirkomulag: Kynningar, hagnýt og fjölbreytt verkefnavinna og umræður
Fjöldi kennslustunda: 5
Kennarar: Rakel. G. Magnúsdóttir og Bjarndís Fjóla Jónsdóttir.
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 11. ágúst kl. 13-16:30
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Allir.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að kynna möguleika skýjalausna til námsumsjónar, tengja við samvinnunámsmöguleika og beina athyglinni að notkun Office 365 í skólastarfi.
Inntak: Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
• Skýjalausnir, samvinnunám og námsumsjón á neti
• Skólaþróunarverkefni með Office 365
• Helstu verkfæri í Office 365: skráarsvæðið (OneDrive), skipulagið (OneNote), ritvinnslan (Word), töflureiknirinn(Excel), miðlun (s.s. PowerPoint og Sway) o.fl.
• Skólastofan: OneNote for Classroom
Kennari: Þórhallur Maack, Ingvar Ágúst Ingvarsson og Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 11. ágúst kl. 13- 16:30
Þátttökugjald: kr. 4000
Markhópur: Samfélagsgreinakennarar, kennarar er hafa áhuga á heimspekilegri nálgun í kennslu og eflingu gagnrýninnar hugsunar og siðfræði
Markmið: Að efla færni þátttakenda í eflingu gagnrýninnar hugsunar og siðfræði sem og að fjalla um hvernig best sé að stuðla að hæfniviðmiðum samfélagsgreina.
Inntak: Fjallað verður um markmið og inntak samfélagsgreina í heild sem og lögð áhersla á að kynna einkenni og hlutverk heimspeki- og siðfræðikennslu. Þá er skoðað hvernig hæfniviðmið samfélagsgreina, í ljósi „reynsluheims“, „hugarheims“ og „félagsheims“, eiga sér heimspekilegar rætur. Þannig felast ýmis hæfniviðmið í að „átta sig á“, „bera kennsl á“ ásamt því að þekkja tiltekin gildi og viðmið og geta lagt mat á þau. Í tengslum við þetta er fjallað um samræðuna sem kennsluform og þá ólíkar leiðir til að nálgast og vinna með ólík viðfangsefni samfélagsgreina, í ljósi heimspekilegrar- og gagnrýninnar hugsunar. Námskeiðið ætti að nýtast öllum þeim er vilja vinna markvisst með gagnrýna hugsun og siðfræði í tengslum við ólíkar námsgreinar en einkum samfélagsgreinakennurum þar sem hluti námskeiðsins felst í að kynna heimspekikennslu, sem vettvang hugmynda, hugsana, viðhorfs og leiða til að nálgast veruleikann.
Fjöldi stunda: 2 klst
Kennari: Elsa Haraldsdóttir, doktorsnemi í heimspeki, Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 10. ágúst kl. 8:30 – 10:30
Þátttökugjald :0
Markhópur: Kennarar á efsta stigi.
Markmið námskeiðs: Að efla færni þátttakenda á kennslu um grunnþætti fjármála. Að setja sér markmið í fjármálum.
Inntak: Kynning á Fjármálaviti og námsefni þess. Verkefnavinna þátttakenda - unnið er með verkefni Fjármálavits ætlað nemendum á efsta stigi grunnskóla. Þátttakendur setja sig í spor nemenda og vinna verkefni í hópum. Verkefnið gengur út á að útbúa áætlun fyrir persónu sem hver hópur fær úthlutað og hjálpa henni að ná markmiði sínu með því að endurskoða fjármálin. Hér reynir á að þátttakendur eigi góðar umræður og þurfa þeir að koma sér saman um áætlunina. Í lokin kynna hópar niðurstöður og taka þátt í umræðum um verkefnið. Sjá vefsíðu Fjármálavits.
Fjöldi stunda: 3 klst.
Kennarar: Margrét Ósk Erlingsdóttir höfundur námsefnis og Helga M. Marzellíusardóttir og Halldóra Gyða Matthíasdóttir sem starfa í fjármálafyrirtækjum.
Hvar: Langholtsskóli
Hvenær: 11. ágúst kl. 13 - 16
Þátttökugjald: 0 kr.
Markmið: Er að kynna mátt núvitundar (mindfulness) og velvildar í eigin garð (self-compassion) og hvaða áhrif það getur haft á að byggja upp jákvætt og gott skólaumhverfi . Að gefa kennurum verkfæri sem þeir geta notað til að efla eigin vellíðan sem og nemenda sinna.
Inntak: Fjallað verður um hvernig megi auka vellíðan kennara og nemenda í skólastarfi. Með vísan í rannsóknir eru færð rök fyrir því að núvitund og velvild í eigin garð stuðli að aukinni vellíðan hjá kennurum og börnum. Sagt verður frá námskeiðinu Hugar-Heill og fræðilegum bakgrunni þess. Markmið námskeiðsins er að kynna mátt núvitundar og velvildar í eigin garð og hvaða áhrif það getur haft á að byggja upp jákvætt og gott skólaumhverfi. Til þess að hægt sé að skapa skólaumhverfi sem ýtir undir samvinnu, gleði og nánd þurfa kennarar að byrja á sjálfum sér og skoða eigin tilfinningar og líðan. Mikilvægt er að kennarar tileinki sér núvitaða kennsluhætti og vinni með sjálfan sig til þess að geta miðlað áfram til nemenda sinna. Kennarar eru mikilvægar fyrirmyndir og allt sem þeir gera og segja koma nemendur til með að taka til sín á einn eða annan hátt. Ef kennurum líður vel í vinnunni og gengur vel að takast á við streitu, hefur það einnig góð áhrif á líðan nemenda í skólanum. Það eru því líkur á að skólasamfélagið allt og foreldrar nemenda upplifi jákvæðar breytingar.
Fjöldi kennslustunda: 1
Kennarar: Aðalheiður Jensen, kennari og barnajógakennari og Svandís Sturludóttir, náms- og starfsráðgjafi. Báðar með diploma í jákvæðri sálfræði á MA stigi.
Hvenær: 10. ágúst kl. 15:30 – 16:30
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: 0
29. Lesskilningur/ritun – yngsta stig
Markhópur: Kennarar í 1. – 3./4. bekkur
Markmið: Að kynna fyrir kennurum gagnreyndar aðferðir til að efla lestur og ritun hjá nemendum á yngsta stigi grunnskóla
Inntak námskeiðs: Unnið verður út frá textum/bókum, sögum og fræðitexta. Kennarar vinna með gagnvirkan lestur, KVL og ritunarramma á fjölbreyttan hátt. Vinnustofan er skipulögð með hringekju og stöðvavinnu og lögð áhersla á fyrirmælaspjöld, samræðu og samvinnu. Að lokum verður farið inn á samstarfs heimilis og skóla við læsisnám barnanna.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfræðingur við MSHA
Hvenær: 11. ágúst kl 9 – 12
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 5.500
Markhópur: Kennarar í 4. – 7. bekkur
Markmið: Að kynna aðferðir til að efla lesskilning og ritun hjá nemendum á miðstigi grunnskóla
Inntak: Unnið verður út frá textum/bókum, sögum og fræðitexta. Kennarar vinna með gagnvirkan lestur, KVL og ritunarramma á fjölbreyttan hátt. Vinnustofan er skipulögð með hringekju og stöðvavinnu og lögð áhersla á fyrirmælaspjöld, samræðu og samvinnu. Leitað er eftir leiðum til að nýta sér áhugasvið og styrkleika nemenda við val á efni og leiðum til náms og afurða.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfræðingur við MSHA
Hvenær: 11. ágúst kl 13 – 16
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 5.500
31. Aðferðir til skilnings – mið- og unglingastig (allar bóklegar faggreinar)
Markhópur: Kennarar á mið- og unglingastigi
Markmið námskeiðs: Kynna aðferðir til að efla mál- og lesskilning nemenda á mið- og unglingastigi
Inntak námskeiðs: Unnið verður með gagnvirkan lestur í því sjónarmiði að nýta hann á fjölbreyttan hátt sem leið til skilnings í öllum námsgreinum. Nýtt námsefni frá Menntamálastofnun verður lagt til grundvallar vinnunni og leitast verður við að sjá fyrir sér ramma utan um læsi til skilnings. Vinnustofan er skipulögð sem stöðvavinna í kjölfar innleggs frá kennara þar sem kennarar prófa sig áfram með gögn og vinnubrögð.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, sérfræðingur við MSHA
Hvenær: 11. ágúst kl 9:00 – 12:00
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 5.500
32. Ritun og ritunarferli - mið- og unglingastig (allar bóklegar faggreinar)
Markmið námskeiðs: Að styrkja kennara í að vinna með ritun á mið- og unglingastigi
Inntak námskeiðs: Unnið verður með hugmyndir um ritun í víðum skilningi þar sem byggt er á því markmiði að skapa merkingu og koma henni frá sér á fjölbreyttan hátt. Líkan um ritunarferli verður lagt til grundvallar umræðu um vinnuna sem á sér stað frá því að hugmynd verður til þar til endanleg afurð er birt. Vinnustofan byggir á innleggi frá kennara og samræðuhópum þátttakenda. Nýtt námsefni frá Menntamálastofnun verður lagt til grundvallar vinnunni og leitast verður við að sjá fyrir sér ramma utan um ritun í víðum skilningi.
Fjöldi kennslustunda: 4
Kennari: Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, sérfræðingur við MSHA
Hvenær: 11. ágúst kl 13:00 – 16:00
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: kr. 5.500
Síðar á skólaárinu verað fleiri námskeið m.a.:
• Innra mat í skólastarfi
• Skólanámskrá og starfsáætlanir
• Fræðslufundir um sérkennslu
• Fræðslufundir um fjölmenningarlega kennsluhætti
• Allir vinir. Forvarnir gegn einelti.
• Nemendalýðræði, hvernig virkar það?
• PMTO
Markhópur: Deildarstjórar, forsvarsmenn læsismála í skólum, fagstjórar sérkennslu og aðrir áhugasamir.
Tilgangur og meginmarkmið erindisins er þríþætt:
• Að fræða um gagnsemi þess að rýnt sé í tölur með markvissum hætti í þeim tilgangi að bæta kennslu og mæta þörfum allra nemenda.
• Að kynna ný stöðupróf sem Menntamálastofnun vinnur að.
Kynning á nýjum stöðuprófum sem Menntamálastofnun vinnur að ásamt að rýnt er í tilganginn með að leggja fyrir skimanir og próf. Það er mikilvæg færni í nútíma samfélagi að vera vel læs. Til þess að meta árangur af kennslu er gott að hafa aðgang að stöðluðum matstækjum sem gefa greinagóðar upplýsingar um stöðu hvers nemanda, ásamt samræmdum lestrarviðmiðum.
Að undanförnu hefur verið unnið að gerð stöðuprófa í lestri fyrir grunnskólanemendur. Þessi próf eru stöðluð fyrir 1.-10 bekk grunnskóla og taka þau á ýmsum þáttum læsis svo sem lesfimi, lesskilningi og ritun. Stöðuprófin, sem byggja á aðalnámskrá grunnskóla, eru ekki ætluð til birtingar heldur eru þau fyrst og fremst hugsuð sem verkfæri fyrir viðkomandi skóla til að bæta kennslu og koma til móts við þarfir nemenda.
Með þessum nýju prófum fá grunnskólar í hendur verkfæri til að halda utan um lestrarferil allra nemenda sinna frá 1.-10. bekk. Prófin verða frí til afnota fyrir alla grunnskóla, hvort sem óskað er eftir að nota prófin í heild eða hluta þeirra.
Fjöldi kennslustunda: 1
Fyrirlesarar: Andrea Anna Guðjónsdóttir og Bjartey Sigurðardóttir.
Hvenær: 10. ágúst kl. 15:15 – 16:15
Hvar: Langholtsskóli
Þátttökugjald: 0
Markhópur: Allir.
Markmið: Kennarar verði í stakk búnir til að vinna stuttmyndaverkefni með nemendum sínum.
Þátttakendur gera stuttmynd frá handriti til fullbúinnar stuttmyndar.
Inntak: Hópurinn hittist í fjögur skipti. Tveir dagar 10. og 11. ágúst og síðan einn aukadagur fyrir klippingar sem verður ákveðinn síðar. Fyrirlestur verður fyrir hádegi og síðan verður hópavinna eftir hádegi.
Seinni hluti námskeiðsins fer síðan fram í september og verður unnið að klippingu í tvo daga eftir hádegi. Tilkynnt nánar um það síðar.
Kennari: Umsjón Erla Stefánsdóttir en leiðbeinendur verður fagfólk innan kvikmyndageirans.
Fjöldi kennslustunda: 25
Staður og tími: Mixtúra – margmiðlunarver Skóla- og frístundasviðs í Háaleitisskóla, Hvassaleiti. 10. og 11. ágúst kl. 9:00 - 15:00.
Þátttökugjald kr. 11,900
Markhópur: Allir kennarar
Markmið námskeiðsins er að gefa grunnskólakennurum verkfæri til þess að fræða nemendur um fötlun og vinna gegn fötlunarfordómum. Er þá átt við hvernig skuli t.d. takast á við fordómafulla orðræðu. Farið verður yfir ýmis verkefni um fötlun sem hægt er að nýta í kennslu. Jafnframt verður fjallað um lykilþætti þess að skapa valdeflandi námsumhverfi þar sem fötluð og ófötluð börn geta saman byggt upp styrkleika sína og sjálfsmynd.
Kennarar: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir, talskona Tabú og nemi í félags- og kynjafræði og Freyja Haraldsdóttir þroskaþjálfi og talskona Tabú.
Fjöldi kennslustunda: 4
Staður: Langholtsskóli
Tími: 11. ágúst kl. 13 – 16
Þátttökugjald kr. 4000