Fimmtudaginn 25. febrúar spjallar katalónsk- spænski rithöfundurinn Jordi Pujolá um bók sína, Necesitamos un cambio. El sueno de Islandia sem kom út árið 2015. Viðburðurinn er á vegum Reykjavíkur Bókmenntaborgar Unesco og fer fram á Icelandair hótel Marina Reykjavík v/Mýrargötu, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 16.30 – 17.30.
Jordi mun spjalla um bókina, ritstörf sín og lífið á Íslandi. Einnig mun hann lesa stuttlega úr bókinni. Viðburðurinn fer fram á ensku og spænsku.
Bókin gerist að hluta til á Íslandi en Jordi skrifað hana eftir að hann flutti hingað til lands fyrir þremur árum.
Á íslensku er titill bókarinnar Við þurfum breytingu. Íslenski draumurinn. Þetta er skáldsaga sem fjallar um tónlistarmanninn Martin og baráttu hans gegn þjóðfélagi misskiptingar og sérhagsmunagæslu fárra á kostnað fjöldans. Hann stofnar stjórnmálaflokk til að knýja fram breytingar. Jordi lýsir sögunni sem nútímalegri skáldsögu sem gagnrýnir kapítalískt hagkerfi og bendir á aðra möguleika. Sögusviðið er Reykjavík, Barcelona, Amsterdam og Hirtshals í Danmörku.
Jordi er frá Barcelona á Spáni. Hann er hagfræðingur að mennt og vann við það fag áður en hann ákvað að söðla um, segja upp góðu starfi og flytja til Íslands með fjölskyldunni sinni árið 2013. Hér stundar hann ritstörf auk þess sem hann hefur gripið í önnur störf, t.d. sem þjónn og lagerstarfsmaður.
Jordi hefur tekist á við margar breytingar samhliða þessum flutningum (nýtt land, nýir vinir, fjölskylda, veður, siðir og menning o.fl.) Fyrst um sinn tók þetta mjög á en nú hrífur vindasamt landið og náttúran hann og hefur Jordi til að mynda skipt bílnum út fyrir reiðhjól. Necesitamos un cambio. El sueno de Islandia er fyrsta bók hans.
Viðburðurinn er haldinn af Hola, félagi spænskumælandi fólks á Íslandi, og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.