Filma drauga, tímaflakk og einelti

Skóli og frístund Menning og listir

""
Frístundamiðstöðin Miðberg hélt sína árlegu kvikmyndahátíð Filmuna í dag í samvinnu við Sambíóin Álfabakka og Barnamenningarhátíð Reykjavíkur. Þar stígur ungt kvikmyndagerðarfólk sín fyrstu skref í faginu.
Myndirnar sem sýndar eru á Filmu eru búnar til af börnum en þau skrifa handrit, leika og taka þátt í eftirvinnslu undir leiðsögn fagmenntaðra starfsmanna í kvikmyndagerð. Börnin leggja mikinn metnað í myndirnar og er skemmtilegt að sjá hvernig þau nota kvikmyndagerð til þess að fjalla um það sem er þeim hugleikið, drauga, tímaflakk, einelti og mannrán svo eitthvað sé nefnt.


Mikil áhersla er lögð á aðkomu barnanna í gerð myndanna og eru verkefnin fjölbreytt og krefjast mismunandi hæfileika og áhugasviðs. Markmið verkefnisins er að kynna börnunum fyrir kvikmyndagerð og þeim fjölbreytileika sem hún býður upp á  sem og möguleikum hennar sem tjáningarformi til sköpunar. 


Í ár voru sýndar þrjár myndir á Filmu frá frístundaheimilunum Bakkaseli, Regnboganum og Hraunheimum.  Á þriðja hundrað manns komu á hátiðina, börn og aðstandendur. Verðlaun voru veitt í fjórum flokkum, fyrir besta handrit, besta leik, bestu búninga og að lokum var valin besta myndin. Sigurvegararnir fengu glæsilegan bikar og allir þáttakendur fengu viðurkenningarskjal fyrir árangur sinn.


Bakkasel hlaut verðlaun fyrir best leiknu myndina, Hraunheimar fyrir besta handrit og Regnboginn fyrir bestu búningana ásamt því að vinna aðalverðlaunin fyrir bestu mynd Filmunnar 2016.


Leikstjóri og umsjónarmaður verkefnisins er Hafsteinn Vilhelmsson en hefur hann stjórnað og þróað verkefnið í frá upphafi eða í fjögur ár. Hátíðin hefur verið hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík sl. tvö ár.